LISTI YFIR LEIGUMIÐLANIR Í HORSENS
::Áður en haldið er til Danmerkur
-Hagstofa Íslands Fá fæðingar-, skírnar-, og hjúskaparvottorð fyrir alla fjölskylduna.
-Atvinnuleysistryggingasjóður - fá staðfestingu um greiðslur í fagfélög (E-301).
-Tryggingarfélag - fá staðfestingu um tjónlaus ár í bifreiðatryggingu.
-Tryggingastofnun Ríkisins - fá vottorð er heitir E-104. En yfirleitt er ekki farið fram á það (samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun Ríkisins).
-Sjóflutningsfyrirtæki - fá tilboð fyrir búslóð (gámur/bretti) þar sem fram kemur endanleg greiðsuupphæð. Búslóð komin úr tolli í Århús, uppskipun, afhending o.frv.. (Hægt er að fá upplýsingar hjá viðkomandi skólum um nöfn þeirra sem eru að flytja út, ef áhugi er fyrir að fleiri taki sér saman um gám!) Gott er að hafa ofangreind vottorð og staðfestingar á dönsku eða alþjóðlegu tungumáli ef mögulegt er.
::Þegar til Horsens er komið
-Ráðhús bæjarins - Manntalsskrifstofa (Folkeregisteret.) Skrá sig inn í landið innan fimm daga frá komu til landsins. Framvísa samnorrænu flutningsvottorði frá Hagstofu Íslands og leigusamningi, þ.e.a.s. viðkomandi þarf að sýna fram á að hafa fast aðsetur. Þá velur maður sér líka heimilislækni. Eftir þetta fær viðkomandi danskt persónunúmer og gerist sjálfkrafa meðlimur að dönsku sjúkrasamlagi og fær sent skírteini þar að lútandi nokkrum dögum síðar.
Ráðhúsið í Horsens
Heimilisfang: Rådhustorvet 4, 8700 Horsens
Sími: 76 29 29 29
Opnunartími:
mán.-þri.-mið.: 9-15
fim.: 9-17
fös.: 8-13
Við skráningu þarf viðkomandi að hafa með sér:
- Passa
- Samnorrænt flutningsvottorð
- Maka sinn ásamt hjúskaparvottorði, ef viðkomandi er giftur
- Barn / Börn ásamt skírnarvottorði
- Til þess að fá danskt persónunúmer þarf að uppfylla þau skilyrði sem sagt er frá undir liðnum "CPR-numer".
::Húsnæði
Í Horsens eru tveir stúdentagarðar eða svokölluð kollegie. Á görðunum er hægt að leigja herbergi eða íbúðir og fer verðið eftir stærð húsnæðis og fleira. Stúdentagarðarnir í Horsens eru:
-Teknisk kollegium
Bestyrelse- og administration
Chr. M. Østergårdsvej 2
Sími: 75626516
(Herbergi og íbúðir)
-4. maj kollegiet
Genneesgade 1
Sími: 75621814
(Eingöngu herbergi)
-Ungdomsboliger - Námsfólk á öllum aldri getur sótt um ungdomsboliger. Þetta eru eins herbergja íbúðir með eða án séreldhúsi og baði. Íbúðirnar eru eingöngu leigðar út til fólks í námi. Það er í flestum tilfellum húsaleigufélögin sem leigja út ungdomsboliger. Ganga þarf í viðkomandi félag og kostar á bilinu 50 - 200 Dkr að standa á biðlista. Biðtími eftir íbúð getur verið allt að eitt ár. Almennur markaður, frjáls markaður - Sá möguleiki er einnig fyrir hendi að leigja á almennum markaði, þ.e.a.s. í gegnum húsaleigufélögin eða gegnum auglýsingar í blöðum. Leiguupphæðin er afar mismunandi og fer eftir stærð, ásigkomulagi og staðsetningu húsnæðis. Þegar leigt er á almennum markaði eru íbúðir sem leigjast út af leigufélögum (boligforeninger) trúlega betri kosturinn a.m.k. hvað varðar öryggi. Í flestum tilfellum er krafist tryggingargreiðslu (indskud/depositum) við upphaf leigusamnings auk venjulegrar húsaleigu. Tryggingarupphæðin er hugsuð til greiðslu viðhalds eftir brottflutning leigjenda og getur verið á bilinu frá 3.000 - 25.000 Dkr. og fer oft eftir leiguupphæð. Tryggingin greiðist að stærstum hluta til baka í flestum tilfellum en fer þó eftir ásigkomulagi íbúðar við brottflutning. Aðal reglan er sú að leigjandi skili húsnæði í sama ásigkomulagi og hann tók við því. Benda skal á - að öruggast er að fara yfir alla íbúðina áður en flutt er inn og skrá niður galla og/eða skemmdir sem kunna að vera á íbúðinni, senda afrit til leigusalans til að forðast það að leigusali taki af tryggingafénu fyrir viðgerðum á skemmdum sem voru ef til vill fyrir þegar viðkomandi fluttu inn. Benda skal á - gott er að ganga í leigusamtökin:
Lejernes LO-Horsens Smedegade 32 sími: 75618770. www.llo.dk
Hægt er að fara í ókeypis viðtal hjá lögfræðingi félagsins á fimmtudögum milli: 19 og 20 og fá ráðgjöf um allt varðandi íbúðir, leigusamninga, leigusala, hvort leiguupphæðir séu í lagi og margt fleira. Ef fólk vill svo taka aðstoð frá félaginu þarf að borga ársgjaldið sem er á bilinu: 200-300dkr. Einnig skal bent á að hægt er að fara með leigusamninginn til Lejernes LO og fá þá til að yfirfara leigusamninginn. Þeir sjá strax ef eitthvað er bogið við verð á íbúðum og annað sem betur gæti farið.
Athuga skal að margar íbúðir á leigumarkaðnum eru í eldri kantinum og eru þar af leiðandi ekki í sama "Klassa" og íbúðir á Íslandi.
Þegar ekki er leigt í gegnum húsaleigufélögin t.d. í gegnum blaðaauglýsingar er oft ekki um sama öryggi að ræða t.d. hvað varðar leigutíma, þ.e.a.s. hættan á að verða sagt upp er frekar fyrir hendi. Leiguupphæðin er þá svipuð og hjá húsaleigufélögunum en tryggingargreiðslan er oft eitthvað lægri og getur numið um þriggja mánaða húsaleigu fyrirfram. Húsaleigan er yfirleitt gefin upp fyrir utan hita og rafmagn. Hiti+rafmagn er töluvert dýrara en á Íslandi.
Hægt er í sumum tilfellum (fer eftir upphæð og fleiru) að sækja um lán hjá bæjarfélaginu fyrir þessari greiðslu (indskudslån) og fást upplýsingar um vexti og lánafyrirkomulag og umsóknareyðublöð hjá:
Boligsikringskontoret Rådhustorvet 4, 8700 Horsens. Allir leigjendur í Danmörku eiga kost á húsaleigubótum, nema þeir sem eiga fasteign. Skilyrði er þó að leiguhúsnæðið sé með eldhúsi og baði. Bæturnar eru reiknaðar út frá tekjum, fermetrafjölda ásamt fjölda fullorðinna og barna. Þegar sótt er um húsaleigubætur (Boligsikring) þarf að sýna húsaleigusamning og er það gert í Ráðhúsinu:
Boligsikringskontoret Rådhustorvet 4, 8700 Horsens.
-Húsaleigufélög:
Arbejdernes Andelssboligforening
Kongensgade 25, 8700 Horsens
Sími:75625822 Fax: 75628580.
Beringsgård Andelsboligforening
Kongensgade 10, 8700 Horsens
Sími:75622812.
Boligselskabet Lejerbo
Pakhustorvet 4, 6000 Kolding
Sími:76307777.
Convenience Ejendomme A/S
Havneallé 39 stuen, 8700 Horsens
Sími:75602900.
Horsens Andelsboligforening
Kollegievænget 6d, st.tv., 8700 Horsens
Sími:75612954.
Horsens Boligudlejning
Sønderbrogade 18, 8700 Horsens
Sími:75601911.
Horsens Sociale Boligselskab
Frederik Bajersgade 16, 8700 Horsens
Sími:75611066 Fax: 75611597.
Andelsboligforeningen Odinsgaard
Spedalsø Torv 4, 8700 Horsens
Sími:75622911 Fax: 75620630.
Pen-Sam
Jørgen Knudsens Vej 2, 3520 Farum
Sími:44393933.
Midtjysk boligselskab
Paul La Coursvej 27, 8660 Skanderborg
Sími: 86522177 Fax: 86510474
Beringshave (Mosinn)
V / Bjarne Jensen 9:30 - 10:00 sími: 75624112
"Mosinn" Hér búa flestir Íslendingarnir
http://www.beringshave.dk
-Aðilar sem leigja út íbúðir (aðrir en húsaleigufélög)
Advokatfirmaet Lokdam, Britta Klank.....Sími: 86124400
Boghandler Børge Faber.......Sími: 75659220
Bolignytt................. Sími: 86881888
DK Boligudlejning.............Sími: 75656589
De Jydske Arkitekter...........Sími: 75640944
Glasmester Frantz Høøj......... Sími: 75625288
Graunkjær.................Sími: 75640802
John Rosenkrantz.................Sími: 75646001
Kob Juul...........................Sími: 75724849
Midtjysk Boligselskab...................Sími: 86522177
-VARAST !!!
Aðilar sem leigja út íbúðir og hafa svikið út tryggingafé o.fl. af Íslendingum
Erik Bek-Horsens Boligrenovering.....Sími:75625454 & 40107454 (Þessi aðili auglýsir mikið í Onsdagsavisen)
Per Overgård.......... ..Sími:89198485
Aps KBUS c/o Rebo Revision & Bogføring
Læsøvej 2B............Sími:???
-Mikilvægt!
Í frí heim til Íslands um jól & önnur tilefni.
Ef leita þarf læknisaðstoðar á meðan dvöl stendur á Íslandi!
Þegar námsmenn á Norðurlöndunum koma til Íslands í frí, þurfa þeir að skila inn til Tryggingarstofnunar staðfestingu á námi, annaðhvort frá skóla eða LÍN,og fá þá útgefið sjúkratryggingaskírteini sem gildir fyrir það tímabil sem þeir dvelja á Íslandi. Fjölskyldur námsmanna eru þá tryggðar líka.
Þeir sem eru að vinna á Norðurlöndunum og fara til Íslands í frí eru tryggðir í bráðatilvikum, þ.e. ef þeir veikjast skyndilega á meðan á dvöl þeirra hér stendur. Það þarf engin vottorð.
En hægt er að biðja um vottorð E-111(niður á Horsens Kommune) til að hafa með sér til öryggis.
Upplýsingar voru fengnar hjá Tryggingastofnun Ríkisins.
::Upplýsingar fyrir barnafólk
Dagvistun - Skólar - Barnabætur - Fæðingarorlof - Skírn barna - Dagvistun
Dagvistun sem í boði er, eru dagmæður fyrir 0-3 ára börn, vöggustofur fyrir 0-3 ára börn og leikskólar fyrir 3-6 ára börn. Sótt er um í Ráðhúsinu:
Børn og Ungeforvaltningen Rådhustorvet 4, 8700 Horsens Sími 76 29 29 29 / Fax 76 29 22 75
Kostnaður við gæsluna er mismunandi eftir tekjum. Hægt er að sækja um frípláss (friplads) þegar sameiginlegar tekjur eru undir 103.000 dkr. á ári. Ef tekjurnar fara yfir 155.000 dkr. á ári greiðist 50% og ef tekjurnar fara yfir 211.200 dkr. greiðist fullt gjald.
Gjald á mánuði, fyrir allan daginn, er í dönskum krónum:
Dagmóðir á vegum sveitafélagsins kr. 2.059,00. (fyrir 0-3 ára)
Vöggustofur kr. 2.987,00. (fyrir 0-3 ára)
Leikskólar kr. 1.552,00. (fyrir 3-6 ára)
Hægt er að sjá öll verð á dagvistun o.fl. á heimasíðunni: www.horsens-bynet.dk
Sótt er um fyrrgreindan afslátt af dagheimilisgjöldum, á skrifstofu ráðhússins sem heitir "Pladsanvisning". Eyðublaðið heitir "Ansøgning om Friplads".
Dagmæður, starfa undir eftirliti hins opinbera. Þær hafa leyfi til að hafa 1-4 börn hver, þar með talin eigin börn innan grunnskólaaldurs. Dagmæðurnar hittast reglulega nokkrar saman með börnin og hafa þær fasta eftirlitsmanneskju. Ef dagmóðir verður veik, er önnur sem sér um barnið á meðan, oftast sú sama. Öfugt við á Íslandi er ekki hægt að brúa bilið þar til barnið kemst á leikskóla með því að setja það til dagmóður, því einnig eru biðlistar hjá þeim. Dæmi eru um að fólk hafi bjargað sér tímabundið með því að auglýsa eftir dagmóður sem starfar á eigin vegum, en bent skal á að þær starfa án eftirlits.
-Skólar
Börn á grunnskólaaldri fara í þann skóla sem tilheyrir hverfinu sem þau búa í. Um leið og skólaráði eða skólastjóra hefur verið tilkynnt um tilvist barnsins í hverfinu,
er það tekið inn í skólann. Skólaárið hefst í byrjun ágúst og lýkur um miðjan júní.
Utan skólatíma eiga börn kost á að vera á skóladagheimili (fritidshjem). Einnig er boðið uppá ýmsa klúbba. Upplýsingar fást í Ráðhúsinu og hjá viðkomandi skóla. Íslensk börn eiga kost á að fá aukatíma í dönsku í skólanum, upplýsingar gefur viðkomandi skóli. Öll íslensk börn á grunnskólaldri eiga kost á íslenskukennslu. En hvers vegna íslenskukennsla, gæti einhver spurt sig, því flest höfum við meiri áhyggjur af dönskukunnáttu barnanna okkar fyrst til að byrja með. Við hvetjum fólk til að senda börn sín í íslenskukennslu, það kemur þeim til góða seinna meir. Kennslan fer fram í Egebjergskolen og er íslenskur kennari sem er búsettur hér sem annast hana. Flest Íslensku börnin ganga í þennan skóla sem er hér í útjaðri bæjarins.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá stjórn Íslendingafélagsins.
-Barnabætur
Íslendingar, búsettir í Danmörku geta fengið greiddar barnabætur í Danmörku. Um
þær þarf ekki að sækja sérstaklega og eru greiddar út fjórum sinnum á ári. Upphæðin fer eftir aldri barnsins. Foreldrar sem eru í námi geta svo sótt um auka barnabætu fyrir námsfólk og er það gert í Ráðhúsinu.
-Fæðingarorlof
Til að eiga kost á greiðslu fæðingarorlofs gilda eftirfarandi reglur:
Launþegar eiga rétt á að fá greitt fæðingarorlof ef viðkomandi hefur verið í vinnu alla vinnudaga síðustu 13 vikur fyrir fæðingu og skilað á þeim tíma minnst 120 tímum. Hægt er að fá greitt fæðingarorlof fjórum vikum fyrir áætlaða fæðingu, og þá þarf að vera búið að ljúka þessum 13 vikum / 120 tímum fyrir þann tíma. Ef viðkomandi er á atvinnuleysisbótum gefur það rétt til greiðslu fæðingarorlofs, þetta gildir líka ef viðkomandi hefur lokið einhverskonar námskeiði eða líkur einhverju námi innan atvinnuleysiskerfisins. Ef viðkomandi hefur innan síðasta mánaðar fyrir fæðingu, lokið viðurkenndu námi, sem hefur tekið minnst 18 mánuði, á hún kost á fæðingarorlofi. Ef viðkomandi er í launaðri starfsþjálfun í viðurkenndu námi gefur það líka rétt til greiðslu fæðingarorlofs.
Sjálfstætt starfandi eiga kost á að fá greitt fæðingarorlof ef viðkomandi hefur unnið minnst 6 mánuði síðastliðna 12 mánuði, þar með talinn síðasta mánuðinn fyrir fæðingu.
Við útreikning á upphæðinni er tekið tillit til tímafjölda og tekna. Upphæðin getur hæst orðið 76,92 dkr. á tímann eða 2.846 dkr. á viku. Ólíkt því á Íslandi eiga konur sem eru heimavinnandi ekki rétt á neinu fæðingarorlofi.
Sveitarfélagið hefur endanlega með það að gera hverjir eiga kost á fæðingarorlofi og hvernig útreikningunum er háttað, og getur verið eitthvað misjafnt eftir sveitafélögum. Fólki er bent á að snúa sér til Ráðhússins til að fá frekari upplýsingar. Í þeim tilfellum þar sem fólk á von á barni þegar það flytur út er því bent á að hafa samband við Tryggingastofnun Ríkisins sem gefur upplýsingar um hvaða rétt viðkomandi á frá Íslandi.
-Skírn barna
Dönsk og íslensk nafnalög eru ólík. Þess vegna þurfa Íslendingar búsettir í Danmörku að sækja um svokallað "navne bevis" hjá sveitarfélaginu ef þeir ætla að láta skíra barn. Þetta gildir jafnt þó skíra eigi barnið á Íslandi. Þetta getur tekið langan tíma, allt upp í nokkra mánuði, að fara í gegnum kerfið. Fólk getur snúið sér til kirkjubókhaldara "kórdegns" í sinni sóknarkirkju. Einnig veitir íslenski sendiráðspresturinn í Kaupmannahöfn upplýsingar.
Einnig er hægt að sækja um nafnið áður Vejle Stats Amt til að stytta tímann eftir bið á nafninu. www.vejleamt.dk
::Vinnumiðlun
Þegar viðkomandi er komin með kennitölu, er hægt að skrá sig atvinnulausan hjá vinnumiðluninni AF (Arbejds Formidlingen).
Þar er hægt að gefa upp upplýsingar um menntun, fyrri starfsreynslu og atvinnuóskir.
Í sjónvarpinu á TV2 eru sýndar atvinnuauglýsingar á hverjum morgni kl. 11:00 mánudag til föstudag. Þar er hægt að sækja um auglýstu stöðurnar með því að hringja í "AF" deildina sem skráð er fyrir auglýsingunni.
Í Horsens og nágreni koma til greina:
AF Horsens 70102626 Holmboes Allé 1
AF Vejle 75 82 04 99
AF Skanderborg 86 52 07 55
AF Århus 86 67 66 10
Í Århus er AF með dótturfyrirtæki, sem heitir JOB 2000. Skrifstofan er að Fredriksgade 35 í midbæ Århus.
Ekki er gott að segja til um hvort auðvelt sé að fá vinnu í Horsens og nágrenni, þar sem það fer eftir ástandi hverju sinni, árstíðum og í hvaða atvinnugeira. Undanfarin ár hafa iðnaðarmenn þó átt auðvelt með að fá vinnu yfir sumartímann. Nú þegar eru fjölmargir Íslendingar við vinnu í Horsens og nágrenni. Í byrjun árs 2001 voru 170.200 manns skráðir atvinnulausir (samkvæmt Danmarks Statistik) svo ljóst er að margir eru um hvert laust starf.
Óhætt er að segja að dönskukunnátta hafi mikið/allt að segja þegar sótt er um vinnu og skal bent á í því sambandi að boðið er uppá dönskunámskeið á vegum sveitarfélagsins, fólki að kostnaðarlausu og hefur það reynst mörgum gott veganesti síðar meir. Í Horsens er líka starfrækt vinnumiðlun eins og áður hefur komið fram (arbejds formidlingen), og er þar hægt að fá upplýsingar um vinnu sem í boði er í nágrenninu. Ekki er mikillar aðstoðar að vænta frá vinnumiðluninni fyrr en viðkomandi er búinn að vera atvinnulaus um nokkurn tíma og hefur orðið góða Dönskukunnáttu. Danskan er sem sagt meginstaða þess að maður fái vinnu. En hingað til hefur verið auðvelt að fá vinnu við hreingerningar (hjá Horsens Kommune, ISS, Elite Miljø, Aktiv rengøring svo eitthvað sé nefnt).
Athuga skal: að á flestum vinnustöðum er ætlast til þess að maður borgi í fagfélög og eru iðgjöldin töluvert hærri en á Íslandi eða allt upp undir 1.500dkr á mánuði.
::Bílamál
Almennt má segja að bílar í Danmörku séu þó nokkuð dýrari en á Íslandi. Ýmsir möguleikar eru fyrir hendi með kaup á notuðum bílum s.s. á almennum markaði þ.e. í gegnum blaðaauglýsingar, af bílasölum og svo erlendis frá. Almennt má segja að öruggast sé að kaupa af viðurkenndum bílasölum og eru bílarnir þá oftast nýskoðaðir og verðið nokkuð hærra.
Hægt er að sækja um leyfi til að flytja inn bíl frá Íslandi og hafa á íslenskum númeraplötum, tollfrítt í eitt ár. Sækja þarf um leyfið innan tveggja vikna frá skráningu inn í landið og einskorðast leyfið við búsetu í innanvið eitt ár. Eftir það þarf að greiða svokallað aðflutningsgjald af bílnum, einskonar toll sem er reiknaður út frá stærð, gerð og aldri bílsins.
Námsmenn sem flytja inn bíl eiga þess kost að greiða eftir svokallaðri "eitt prósent reglu". Þá er greitt 1% á mánuði af aðflutningsgjaldi (tollverði) bílsins í hámark 36 mánuði þ.e. þrjú ár frá komuni til landsins. Þá þarf að greiða hálft ár fyrirfram og framvísa staðfestingu frá skóla um að viðkomandi ljúki námi á næstu þremur árum.
Upplýsingar er hægt að fá hjá Told og Skat í Horsens.
Told- og skatteregion, Løvenørnsgade 25, 8700 Horsens, sími: 79257300
Vinsælt hefur verið hjá Íslendingum að kaupa bíla í Þýskalandi og á þá svokölluðum tollagreiðslum til 8.ára. Upplýsingar um það er að finna hjá Told&Skat www.toldogskat.dk og einnig er góð heimasíða (www.bilpriser.dk) til þar sem hægt er að reikna út tollagreiðslurnar á mánuði af viðkomandi bíltegund. Einnig er hægt að ráðfæra sér við Íslendinga búsetta hér sem hafa farið þessa leið í bílakaupum.
Mælt er með að hafa meðferðis staðfestingu um að viðkomandi hafi verið með bíl í tryggingu á Íslandi og hversu lengi. Þessi staðfesting getur leitt til verulegrar lækkunar á bifreiðatryggingu. Bent skal á að tryggingafélögin eru þó nokkuð mis dýr.
Þess má geta að hægt er að hjóla á milli flestra staða í Horsens og víðast hvar er gert ráð fyrir hjólreiðamönnum með sérstökum hjólabrautum meðfram götunum.
::Ýmislegar upplýsingar
-Sjúkrasamlag:
Við skráningu inn í landið gerist viðkomandi sjálfkrafa meðlimur að dönsku sjúkrasamlagi og fær skírteini þar að lútandi sent til sín. Einnig velur maður sér heimilislækni og er hægt að skipta um lækni hvenær sem er. Almenn lækna og sjúkraþjónusta er áþekk því sem þekkist á Íslandi en er fólki að kostnaðarlausu. Tannviðgerðir barna upp að 18 ára aldri eru foreldrum líka að kostnaðarlausu. Mælt er með að hafa meðferðis bólusetningar / heilsufarsbók barna, og einnig læknabréf á dönsku ef um alvarlega sjúkdóma einhvers hefur verið að ræða.
-Danskt persónunúmer (CPR - numer "Sygesikringskort")
Til þess að fá danska kennitölu (cpr-numer), þarf að uppfylla viss skilyrði.
Sem námsmaður: - að famvísa "Samnorrænu fluttningsvottorði"
- að framvísa sönnun fyrir að maður sé í skóla
Ekki námsmaður: - að framvísa "Samnorrænu fluttningsvottorði"
- að framvísa húsaleigusamning eða atvinnu-
samning
Ef viðkomandi er ekki með húsaleigusamning né atvinnusamning, er ekki að vænta kennitölu fyrr en í fyrsta lagi eftir þrjá mánuði.
-Sygesikringskort-(einskonar nafnskírteini)
Kortinu þarf að framvísa á mörgum stöðum, t.d. hjá heimilislækni, tannlækni, við kaup á GSM-símum, stofnun bankareiknings, á bókasafninu o.m.fl.
-Félagsleg hjálp (Bistandshjælp)
Það er hægt að sækja um félagslega hjálp frá sveitarfélaginu, ef viðkomandi er atvinnulaus, þó háð ýmsum skilyrðum, m.a. að maður sé með danska kennitölu og fl.
Eigi viðkomandi hús á Íslandi á hann ekki kost á félagslegri hjálp.
Námsmenn og makar þeirra, geta ekki fengið félagslega hjálp, venga þess að þeir eiga kost á aukaláni fyrir heimavinnandi maka með börn á framfæri.
Að lokum skal bent á að það er skilyrði að vera skráður atvinnulaus (hjá AF), ef maður sækir um félagslega hjálp.
-Skattamál:
Tekjur.
Námslán eru ekki viðurkennd sem tekjur í Danmörku.
Skattur.
Í Horsens er skattprósentan um það bil 42 - 43 % .
Vaxtafrádráttur (rentefradrag)
Maður getur sótt um vaxtabætur af lánum sínum, ef vextir eru ekki taldir fram á skattaskýrslu á Íslandi. Vextina skráir maður á skattaskýrsluna í reitin Renter.
Akstursstyrkur (befordring)
Ef viðkomandi er með vinnu, sem er meira en 12 km frá heimili sínu, getur viðkomandi sótt um akstursstyrk (befordring) fyrir auka kilometrana en borgar sjálfur fyrstu 24 km (12 km fram og tilbaka).
Hærri persónufrádráttur:
Námsmenn sem eru í vinnu með námi, geta sótt um hærri persónufrádrátt / frítekjumark. Ef viðkomandi fær einhverjar tekjur frá Íslandi, þá lækkar frádrátturinn um sömu upphæð.
Námslán eru ekki viðurkend sem tekjur í Danmörku.
Til að eiga kost á þessum frádrætti er reglan sú, að viðkomandi komi beint frá Íslandi til Danmerkur, í þeim tilgandi að fara í nám, og ætli sér að búa hérna tímabundið, sem námsmaður. Þess vegna geta námsmenn, sem eru búnir að búa í Danmörku um nokkurn tíma, áður en þeir hefja nám, ekki fengið þennan frádrátt.
Ónýttan persónufrádrátt / Íslendingafrádrátt getur makinn nýtt.
-Tryggingar
Nauðsynlegt er að hafa lágmarks-heimilistryggingu vegna þess að þjófnaðir eru mjög algengir hér. Mikil samkeppni er milli tryggingafélaganna, því er gott að leita tilboða hjá fleiru en einu tryggingafélagi.
-Bankar
Þjónustan er svipuð þeirri á Íslandi. Í rauninni er sama hvaða banka er valið. Best er að velja sér banka sem er á flestum stöðum í Danmörku. Þurfi fólk að senda pening til Íslands, fá pening sendan til Danmerkur, leysa út ávísun o.s.frv. Þá verður fólk að fara í sinn viðskiptabanka. Til eru tvö mismunandi bankakort(hraðbankakort):
Hævekort: getur maður einungis notað til að taka út pening úr hraðbanka og ATH! - AÐEINS Í SÍNUM VIÐSKIPTABANKA. Ef þú ert í Kaupmannahöfn og vantar pening og þú ert viðskiptavinur í Danske Bank að þá verður þú að finna Danske Bank til að taka út pening, þú getur ekki farið í hvaða banka sem er.
Dankort(DK): er það sama og debetkortin heima á Íslandi og er hægt að nota þau í öllum hraðbönkum og öllum verslunum.
Búast skal við töluvert hægari þjónustu, t.d. tekur 5.virka daga að senda peninga til Íslands. Ef skipta á erlendri ávísun tekur það 2.virka daga.
Ef fólk vill nýta sér greiðsluþjónustu bankanna er hún almennt góð og sparar meður sér mikla peninga við greiðslu á reikningum, gíróseðlum o.fl.
Einnig er bent á heimabanka sem finnast í flestum bönkum og er einnig töluvert ódýrara að borga reikninga í gegnum þá.
Dæmi um banka sem finnast á sem flestum stöðum í Danmörku: Danske Bank, Unibank, BG-bank.
-Sími
Tele Danmark er okkar Landssími og á allar símalínur inn í húsin. Það kostar 950dkr að fá línu og númer. Við fluttning í annað húsnæði/íbúð þarf að greiða 500dkr. Tele Danmark býður einnig upp á Internet-þjónustu (e-mail o.fl.) Mínotugjald er almennt dýrara en á Íslandi (þá er átt við símtöl til Íslands). www.tdc.dk
-Sjónvarp (Kabalsjónvarp)
Ef sjónvarp er ekki innifalið í húsaleigunni (er í einstaka tilfellum) þá leigja flestir sér Kabal-sjónvarp og svo er einnig hægt að fá sér gervihnattadisk.
Kabalsjónvarpið inniheldur ca:28 sjónvarpsstöðvar og/eða allar þær hellstu hér í Danmörku. Leigan er ca: 700dkr þriðja hvern mánuð.
Upplýsingar fást hjá: Telia Stofa A/S Uranivej 6 sími:70104588 www.stofa.dk
-Hraðvirkt innternet
Hjá sama fyrirtæki og Kabal-sjónvarpið (Stofa-Net) er hægt að fá mjög hraðvirka, ódýra og góða internet tengingu svokallað Flex-Rate sem kostar minnst 60dkr og mest 200dkr (fer eftir notkun) á mánuði.
Fyrir 200dkr fær maður internet aðgang sem samsvarar 4.000Mb yfir mánuðinn. Það er ekki nema 5% af notendum Stofa-Net sem fara yfir 200dkr á mánuði í notkun.
-Skráning í símaskrá á Íslandi
Til að vera skráður í símaskrá á Íslandi getur maður skráð sig á heimasíðunni: www.simaskra.is og skráð heimilisfang, símanúmer o.fl. Á Hagstofu Íslands er maður skráður sem Jón Jónsson-Danmörku og kemur heimilisfangið hvergi fram.
-Helstu skólar og menntaleidir
Þetta er stutt yfirlit yfir helstu skóla í Horsens og nágrenni og upptalning á hluta af þeim námsgreinum sem í boði eru. Þessi upptalning er ekki tæmandi og er aðeins ætluð sem innsýn í þá möguleika sem í boði eru. Einnig ýmislegt sem ekki er námsæft hjá LÍN s.s styttri námskeið og fl.
Vitus Bering Tækniháskólinn
Chr. M. Østergårdsvej 4, 8700 Horsens (Vitus Bering)
-Hægt að stunda nám í tæknifræði, s.s. byggingartæknifræði, véltæknifræði og útflutningstæknifræði, ýmiskonar iðnnám, tækniteiknun, iðnfræði og byggingafræði.
Horsens Amtsgymnasium
Højen 1, 8700 Horsens
-Almennur menntaskóli. Í Danmörku er menntaskólanám þrjú ár.
Bygholm Landbrugsskole
Hattingvej 49, 8700 Horsens
-Landbúnaðarnám.
Gedved Statsseminarium
Egebjergvej 1, Gedved
-Fóstrunám, þroskaþjálfanám.
Vejle amts gymnasium og HF-kurser (Horsens statsskole)
Studentervænget , 8700 Horsens
-Almennur menntaskóli ásamt námskeiðum í ýmsum greinum. Einnig með svokallað HF-kerfi þar sem hægt er að taka margvísleg námskeið og innritast á ýmsar brautir og ljúka svo stúdentsprófi med HF-próf.
AOF&Horsens Daghøjskole
Holmboes Allé 2, 8700 Horsens
-Þarna er hægt að komast á góð Dönskunámskeið.
AMU - center Horsens
Falstersgade 24 & Fuglevangsvej 61, 8700 Horsens
-Ýmiskonar námskeið
Horsens Handelsskole http://www.horshs.dk
Stadionsvej 2, 8700 Horsens
-Þetta er verslunarskóli bæði á menntaskóla- og háskólastigi. Inntökuskilyrði í skólann á háskólastigi er stúdentspróf.
IT- Centret Horsens Handelsskole http://www.dmu.horshs.dk
Holmboes allé 2, 2. sal, 8700 Horsens
Þar er hægt að læra það sem samanber kerfisfræði.
Horsens EDB - center
Tobaksgården 10, 8700 Horsens
-Tölvunámskeið ýmiskonar.
VUC Horsens
Holmboes Allé 1, 8700 Horsens
-Ýmis námskeið, málanám , tómstunda- og handavinna.
Folkeligt oplysnings forbund - FOF
Holmboes Allé 2, 8700 Horsens
-Ýmis námskeið, tungumál, handavinna og fl.
::Hérna koma nokkrar staðreyndir um Horsens
56.870 Íbúar 18.328 hektarar 25 Bæjarfulltrúar 1 Bæjarstjóri 30 Ókeypis reiðhjól til leigu 3000 Bílastæði án gjalds 6000 Bílastæði í allt 5 Göngugötur m.a. breiðasta göngugata Norður-Evrópu 5 Hótel 4 Tjaldsvæði 3 Krár 1 Leikhús 2 Ferðaskrifstofur 1 Kvikmyndahús 5 Diskótek 2 Tónlistarstaðir 21 Veitingahús 3 galleri og Handverkslistamenn 3 Árlegar Bæjarskemmtanir 4 Markaðir 2 Torgdagar-með grænmeti,osta,blóm o.fl. 55 Almennings Skúlptúrar 18 Sögulegar Byggingar og Staðhættir 1 Farfuglaheimili 28 Minnisvarðar 5 Söfn 1 Bókasafn 1 Ríkisfangelsi með safni 3 Lystibátahöfn 1 golfvöllur 21 kirkjur 4 eyjar 2 Ferjusiglingaleiðir 14 græn-svæði 1 friðað svæði með 211 mismunandi fuglategundum 4 almenningsgarðar 2 ár 3 almenningsstrandir 4 Hallir og Herragarðar 4 bílaleigur
Frá Horsens eru ca:50km til Århus sem er alveg tilvalið fyrir þá sem þyrstir í smá stórborgarmenningu að kíkja þangað. Lestin fer á klukkutíma fresti svo ekki er nauðsynlegt að eiga bíl til að komast þangað og er lestarstöðin í Århus nánast við enda göngugötunnar.
Ef fólki langar að fræðast meira um Horsens og nágrenni er bent á heimasíðurnar: www.visithorsens.dk og www.horsens.dk
::Íslendingafélagið í Horsens
ÍFH er skammstöfun fyrir Íslendingafélagið í Horsens og nágrenni, en það var stofnað árið 1982. Félagið hefur að markmiði sínu, eins og segir í lögum félagsins, að stuðla að innbyrðis samskiptum félagsmanna og gangast fyrir dreyfingu upplýsinga um félagsleg málefni Íslendinga á starfssvæðinu. Félagið annast útgáfu á fréttabréfinu "Eyjólfi" þar sem fram koma helstu upplýsingar um starfsemi félagsins svo og annað skemmtilegt lestrarefni. Ýmis starfsemi er á vegum félagsins, og hafa í gegnum árin skapast fastir liðir sem reynt er að halda í heiðri. Hæst ber þar hið árlega þorrablót, "17. júní" hátíð, grillveisla, haustball og jólatrésskemmtun, ásamt öðru sem til fellur hverju sinni. Félagið er meðlimur að SÍDS, sambandi Íslendinga á norðurlöndum, sem m.a. sér um samninga á flugfargjöldum til Íslands.
Þessi upplýsingabæklingur var gerður árið 1998 og er yfirfarinn árlega.
::Áður en haldið er heim til Íslands á ný
-Varðandi flutninga til Íslands - þá þarf að hafa með sér samnorrænt flutningsvottorð, og vottorðið E 104. Á Íslandi er 6 mánaða biðtími í sjúkrasamlaginu, en ef fólk kemur með E 104 með sér, og skilar því inn á Tryggingastofnun ríkisins, þá er það komið með réttindi, miðað við skráðan flutningsdag til landsins. Það eru sjúkrasamlögin sem gefa út E 104. Ef fólk hefur verið búsett úti skemur en ár, þá sækir það um undanþágu til aðskila E -104, sótt er um undanþáguna hjá þjónustumiðstöðinni hjá Tryggingastofnun.
-Sjóflutningsfyrirtæki - fá tilboð fyrir búslóð (gámur/bretti) þar sem fram kemur endanleg greiðsuupphæð. Búslóð komin úr tolli í Reykjavík, uppskipun, afhending o.frv. Hverju þarf að segja upp ???
Síðast yfirfarinn: 18.11.2001
Ingvar Baldursson
Vigdís L.Jónsdóttir