ifhorsens.dk | Íslendingafélagið í Horsens | ifhorsens.dk



      

 


 


22. december 2009
Þorrablót

Ágætu Íslendingar í Horsens

Nú er komið að því! Viðburðurinn sem allir hafa beðið eftir.

·         Dagurinn er: 20. Febrúar 2010

·         Staðurinn er : Egebjerghallen, Íþróttahúsið við Egebjergskóla

·         Tíminn er: 18:00 en matur hefst um klukkustund síðar

Hinn margrómaði skemmtikraftur, eftirherma, ævisöguritari, viðskiptafræðingur og Þróttari: Sólmundur
Hólm,
mun halda stemningunni  á sínum stað með sinni stjórn og tilheyrandi gítargauli.

Vinsældir Ingós og Veðurguðanna þarf víst ekki að kynna. Ingó er séríslenskur hjartaknúsari sem sló svo eftirminnilega í gegn í Idolinu hérna  um árið. Líkur er á því að hjörtu  hrossneskra yngismeyja slái örar við að berja kappann augum á sviði. Og ekki eru þeir úr Veðurguðunum síðri, en skilst okkur að þar sé sunnlenskt eðalblóð á ferð.  Ingó og Veðurguðirnir munu spila fyrir dansi frá kl. 23.00 og til 02.00 og minnum við því alla á að pússa dansskóna því það verður tjúttað!

 

Matinn fáum við frá Kjarnafæði sem eru nýjir af nálinni hjá okkur í ár. Kjarnafæði er eitt helsta framleiðslufyrirtæki á matvælum á Íslandi og ættu þeir því vel og vandlega að kunna sitt fag. Á boðstólnum verður hinn hefðbundni þorramatur auk glóðarsteikts lambalæris og meðlætis. Maturinn verður framreiddur af stjörnukokknum Jónasi sem kemur frá Kaupmannahöfn með dyggri  aðstoð okkar eina sanna Gumma.

Takið því daginn frá gott fólk, forsala miða er hafin hjá Þorrablótsnefnd og er miðaverð það sama og í fyrra, og árið þar áður fyrir þá sem eru í íslendingafélaginu, litlar 350 kr. á mann, en 150 kr.  fyrir ballið. 100 krónur bætast ofan á miðaverð fyrir utanfélagsmenn.  Forsölu miða lýkur 2. febrúar en eftir það hækkar miðaverð um 50 kr.

Höfum íslenskt þema í ár, fyllumst stolti af okkar séríslensku rótum og klæðum okkur og skemmtun í takt við það. Lopapeysur, túttur og sól í anda, með Ingó, Veðurguðunum og Sóla Hólm

 

Þorrablótsnefnd

Ásgerður  Hafsteins, Áslaug  Friðfinns, Guðmundur Ingi , Laufey Skúla. Margrét Ólafs , Steinunn Haralds og Þórir Jóns

 



Til baka


 

Pallur og ýmislegt til sölu í Mosahús. 9. juni 2010
Viðskiptatækifæri - atvinna 22. maj 2010
Til sölu vegna flutninga ! 17. maj 2010

Allar smáauglýsingar