STÝRIRIT OG LÖG ÍSLENDINGAFÉLAGSINS Í HORSENS
Endurskoðuð september 2006
::INNGANGUR
Þetta stýririt er hugsað sem hjálp til stýringar og starfsdeilingar á allri starfssemi Íslendingafélagssins í Horsens. Á aðalfundi félagsins skulu allir stjórnarmeðlimir og endurskoðendur fá eintak, sem og nefndir og klúbbar.
::STJÓRN
Í stjórn sitja sjö manns sem kosnir eru á aðalfundi: formaður, gjaldkeri, ritari, formaður skemmtinefndar, formaður íþróttanefndar og tveir meðstjórnendur. Auk þess eru kosnir tveir varamenn.
Stjórnin hefur yfirumsjón með öllum viðburðum félagsins og sér um að viðhalda dagskrá ársins. Undir starfsemi stjórnar falla, auk almennra nefndarstarfa, ýmsir fastir liðir s.s. þorrablót, 17.júní hátíð, félagsfundur og aðalfundur. Þá skipta stjórnarmeðlimir jafnt með sér verkum og er það hagur allra að atburðir sé eins vel skipulagðir og hægt er.
::FORMAÐUR
Kynning á Íslendingafélaginu í Horsens út á við:
Formaður er andlit félagsins út á við. Hann/hún á að sjá um að upplýsa kommúnu, ræðismann og önnur íslendingafélög um sitjandi stjórn hverju sinni. Tengiliður við önnur félög:
Formaður skal sjá um að önnur félög fái sendar þær upplýsingar sem þörf er á hverju sinni. Í augnablikinu er í gildi samningur milli íslendingafélaganna í Danmörku um að senda á milli sín málgögn hvers félags. Einnig ber formanni að mæta á fundi með öðrum formönnum íslendingafélaga í Danmörku. Fundirnir eru haldnir eru árlega til skiptis hjá formönnum félaganna.
Virkjun stjórnarmeðlima og nefnda:
Formaður skal bera ábyrgð á því að öll starfsemi félagsins sé eins virk og mögulegt er hverju sinni. Honum/henni ber að passa upp á að allir stjórnarmeðlimir taki virkan þátt í félagsstarfinu og gæta þess að deiling verkefna sé jöfn og sanngjörn. Einnig skal formaður sjálfur taka virkan þátt í starfsemi félagsins.
Fundarseta:
Formanni ber að sitja alla opinbera fundi haldna af félaginu, s.s. félagsfund og aðalfund. Hann/hún skal setja fundina formlega og stjórna kosningu á fundarstjóra og fundarritara.
::GJALDKERI
Almennt:
Gjaldkera ber almennt að hafa yfirumsjón með öllu sem viðkemur fjármálum félagsins, s.s. að innheimta peninga vegna auglýsinga í málgögnum félagsins og hafa yfirumsjón með rekstri og fjármálum sjoppunnar. Einnig skal gjaldkeri taka virkan þátt í starfsemi stjórnar. Daglegur rekstur:
- Hann/hún skal færa í bókhaldið allar inn- og útkomur hjá félaginu.
- Gjaldkeri útbýr greiðsluseðla og sér um að senda þá til félagsmanna. Í samráði við ritara félagsins sér gjaldkeri um að halda yfirlit yfir greidd félagsgjöld.
- Gjaldkeri sér um að greiða alla þá reikninga sem berast félaginu.
Ársuppgjör:
14 dögum fyrir aðalfund félagsins skal bókhaldið vera uppgert af gjaldkera og afhendast enduskoðendum ásamt fylgiseðlum. Á aðalfundinum skal bókhaldið ligga fyrir samþykkt af báðum enduskoðendum. Gjaldkera ber þá að skila af sér bankabók með innlögðum fjármunum félagsins. Gjaldkera, ásamt endurskoðendum, ber að mæta á aðalfundinn til að útskýra fjárhagssstöðuna, taka á móti athugasemdum og ræða betrumbætur ef þörf er á.
::RITARI
Almennt:
Ritari tekur almennt virkan þátt í starfsemi stjórnar.
Fundarskrif:
Ritari á að mæta á alla stjórnarfundi og skrifa fundargerðir með yfirliti yfir þau verkefni sem þarf að leysa eftir hvern fund. Æskilegt er að senda fundargerðir jafnóðum með tölvupósti til allra stjórnarmeðlima, einnig varamanna. Allar fundargerðir á að geyma og í lok ársins að binda þær inn til að afhenda nýrri stjórn á aðalfundi.
Félagaskrá:
Ritara ber að halda utan um og uppfæra félagaskrána sem í dag er unnin í forritinu Exel . Þá ber henni/honum að prenta út límmiða þegar senda á póst til félagsmanna, hvort sem það er á vegum stjórnar eða annarra nefnda.
Símaskrá:
Ritari ber ábyrgð á uppfærslu og útgáfu símaskrár félagsins-en símaskráin en jarfnframt fullgild félagaskrá - þar eiga allir félagar sem að greitt hafa sín félagsgjöld að vera með sitt nafn. Símaskráin er aðgengileg á vefsíðu félagsins og er uppfærð minnst 2var á hverju starfasári.
Stýririt:
Ritara ber að viðhalda stýririti félagsins í samráði við stjórn.
Ársskýrsla:
Ritari skrifar ársskýrslu í samráði við stjórn.
::FORMAÐUR SKEMMTINEFNDAR
Helsta starf formanns skemmtinefndar er að vera tengiliður milli stjórnar og skemmtinefndar. Hann/hún skal því sitja alla fundi bæði hjá skemmtinefnd og stjórn. Einnig tekur hann/ hún fullan þátt í starfi stjórnar sem og skemmtinefndar.
::FORMAÐUR ÍÞRÓTTANEFNDAR
Helsta starf formanns íþróttanefndar er að vera tengiliður milli stjórnar og íþróttanefndar. Hann/hún skal því sitja alla fundi bæði hjá íþróttanefnd og stjórn. Einnig tekur hann/ hún fullan þátt í starfi stjórnar sem og íþróttanefndar.
::MEÐSTJÓRNENDUR
Meðstjórnendur taka fullan þátt í starfsemi stjórnar. Og sitja alla stjórnarfundi.
::VARAMENN
Eru kosnir á aðalfundi. Hægt er að leita til varamanna ef stjórnarmeðlimur af einhverju orsökum getur ekki lengur sinnt starfi sínu. Einnig er möguleiki á að nýta sér varamennina þegar mikið álag er á stjórninni eins og t.d. við undirbúning þorrablóts.
::STARFSEMI STJÓRNAR
Heimasíðan:
Íslendingafélagið í Horsens hefur nýlega fengið nýtt domain nafn:http:// ifhorsens.dk. Æskilegt er að á heimsíðunni sé að finna allar helstu upplýsingar um Íslendingafélagið og jafnframt að þar sé að finna uppfærðar leiðbeiningar fyrir þá sem eru að flytja til eða frá Danmörku. Stjórn skal finna heimasíðustjóra sem sér um að viðhalda og uppfæra heimasíðuna reglulega. Heimasíðustjóri skal sitja sem flesta stjórnarfundi .
Jólamessa:
Mjög notalegt er að halda þessa hátíðlegu stund fyrir jólin. Þá þarf að hafa samband við sendiráðsprestinn í Kaupmannahöfn, finna lausa kirkju og ákveða dagsetningu.
Jólaball:
Fyrir jólaball þarf að útvega húsnæði og auglýsa stað og stund. Tryggja þarf að jólatré sé á staðnum og sjá til þess að salurinn sé skreyttur sem og tréð. Finna þarf góða jólasveina, gítarspilara eða jafnvel hljómsveit. Einnig þarf að vera hljóðkerfi og græjur á staðnum. Þá þarf að hugsa út í veitingar og kaffi.
Jólasveinar á aðfangadag:
Það hefur skapað lukku undanfarin ár að fá jólasveina til að bera út gjafir til barnanna á aðfangadag. Foreldrar eiga sjálfir að skrá börnin sín og koma með gjafirnar á tiltekinn stað sem auglýstur er í Eyjólfi eða Eyva.
Félagsfundur:
Félagsfundur er oftast haldinn á miðju starfsári, þ.e.a.s. í janúar eða eftir þörfum. Fyrir fundinn þarf að útvega húsnæði og finna mögulegan fundarstjóra og fundarritara. Þá þarf að gera fundardagskrá og jafnvel leggja fram bókhaldið.
Gera þarf ráðstafanir með veitingar og kaffi. Oft hefur fólk verið beðið um að taka með sér veitingar, en stjórnin hefur verið með gossölu og boðið upp á kaffi. Sjá þarf til þess að sjoppan sé á staðnum með íslenskt sælgæti.
Þorrablót:
Ýmislegt þarf að undirbúa fyrir þorrablót sem skapast hefur hefð fyrir að halda helgina eftir frívikuna í febrúar. Þá hefur þótt árangursríkast að skipa tímanlega í nefndir ef að stjórn finnst þörf á þar sem hver stjórnarmeðlimur fær sína nefnd og útvegar sjálfur aðra félaga sér til hjálpar. Annars ef að stjórn treystir sér til sér hun alfarið um að skipuleggja Þorrablót. Nefndirnar eru:
- Matarnefnd
- Barnefnd
- Tónlistarnefnd
- Skreytingarnefnd
- Rútunefnd
- Og jafnvel fleiri ef þörf telst á.
Í sameiningu hefur stjórnin fundið veislustjóra og einhvern til að fara með annál. Þá þarf að búa til dagskrá og jafnvel útbúa söngbók og efla til fjöldasöngs.
Skemmtinefndin hefur það fyrir hefð að vera með skemmtiatriði á Þorrablóti.
17.júní hátíð:
Er haldinn í samstarfi við skemmtinefnd og íþróttanefnd. Fyrir 17.júní þarf að finna húsnæði og auglýsa stað og stund undir grill. Þarf að huga að öllu því sem grilli viðkemur, þ.e.a.s. redda grillum, kolum og olíu. Gott er að fá sjoppuna á staðinn og vera með kaffi og það sem því fylgir. Einnig þarf að útvega allt í góða skrúðgöngu: trommur, trúða og trúðabúninga, blöðrur, fánabera og fána. Hér er t.d.hægt að nota afganga úr sjoppunni til að deila út til barnanna.
Aðalfundur:
Aðalfundur skal haldinn í september samkvæmt lögum félagsins. Til fundarins skal auglýsa með minnst sjö daga fyrirvara og í fundarboði eiga að koma fram allar þær tillögur til lagabreytinga sem á að kjósa um á fundinum.
Finna þarf mögulegan fundarstjóra og fundarritara. Gera ráðstafanir með kaffiveitingar eins og á félagsfundinum. Gott er að hafa sjoppuna á staðnum ef eitthvað nammi er til.
Fyrir aðalfund þarf ritari að útbúa og ljósrita eftirfarandi:
- Uppfært stýririt
- Skýrsla stjórnar
- Fundardagskrá
- Uppfærð lög félagsins
Dagskráin er í samræmi við lög félagsins.
::STARFSEMI SKEMMTINEFNDAR
Starfsemi skemmtinefndar er breytileg frá ári til árs. En eftirtaldir atburðir hafa reynst vel og er því mælt með að halda árlega:
Skógarferð:
Oftast haldin í samstarfi milli skemmtinefndar og íþróttanefndar. Byrja þarf á að halda sameiginlegan fund. Finna þarf góða staðsetningu og auglýsa stað og stund. Útvega þarf gott skemmtiefni, t.d. heimatilbúin leiktæki, ratleiki og stöðvaleiki. Útvega þarf efni í brennu og þá athuga vel hvort leyfilegt sé að halda brennu á tilteknum stað. Gera þarf snörrebrödsdeig og útvega prik til að þræða degið upp á. Þá þarf að vera grill, kol og olía til staðar. Ef til er nammi þá er hægt að fá sjoppuna á staðinn.
Bingó:
Finna þarf húsnæði og auglýsa stað og stund. Það þarf að útvega bingóspjöld og vinninga. Síðast voru fengin að láni Banko spjöld hjá KFUM og K. Vinningarnir voru fengnir hjá hinum og þessum fyrirtækjum í bænum sem í staðinn fengu auglýsingu í Eyjólf.
Furðufataball fyrir börn:
Öskudags- eða Fastelavnsball fyrir börn, þar sem sleginn er kötturinn úr tunnunni, er mjög vinsæll viðburður.
Aðrar hugmyndir eru t.d.:
- Pöbbakvöld
- Bowling og bein
- Furðufataball fyrir fullorðna
- Áramótabrenna
- Karókíkvöld
- Eurovisionkvöld
- Fótboltaveislur
- Verslunarmannahelgarútilegur
::STARFSEMI ÍÞRÓTTANEFNDAR
Klakamót:
Mótshaldari sér um að tilkynna mótið til formanna íþróttanefnda félaganna. Tryggja þarf gistingu á mótsstaðnum í samráði við mótshaldara.
Auglýsa og fá menn til að skrá sig á mótið. Þar á eftir að tilkynna verðandi þáttakendum um frest til að borga staðfestingargjald, sem ákvarðast eftir þáttöku hverju sinni. Tilkynna svo mótshöldurum um þáttöku. Undirbúa þarf farkost (einkabílar, rútur eða annað). Ef safnast í fleiri en eitt lið, þá er það íþróttanefndarinnar að skipta í lið þannig að sem flestir eru sáttir.
(Athuga þarf með styrk frá stjórn)
Skautaferð:
Finna skautahöll, mögulega höllina í Århus. Athuga verð og opnunartíma. Athuga með farkost og jafnvel sameiginlegt nesti. Auglýsa og taka við skráningu.
Skógarferð:
Er haldin í samráði við skemmtinefnd. Sjá lið undir skemmtinefnd.
Fótbolti:
Ákveða þarf stað til æfinga og auglýsa til félagsmanna.
Barnaleikfimi:
Leikfimissalurinn í Vestby skólanum hefur verið fenginn til okkar afnota á miðvikudögum frá 15.50-17.50. Fyrra tímanum hefur verið ráðstafað í barnaleikfimi. Athuga þarf hvort endurnýja þurfi þennan samning við Kommúnuna. Finna þarf stjórnanda og auglýsa stað og stund.
Kvennaleikfimi:
Möguleiki er að hafa kvennaleikfimi í seinni tímanum í Vestby. Þá þarf að finna stjórnanda og auglýsa stað og stund.
Blakkeppni:
Á síðasta ári var haldin blakkeppni sem heppnaðist mjög vel og þyrfti endilega að endurtaka. Þá þarf að tala við gömlu íþróttanefndina og fá upplýsingar um hvernig að þessu var staðið.
::ENDURSKOÐUN SJÓÐSBÓKA
Endurskoðendur:
Helsta starf endurskoðenda er að endurskoða bókhald félagsins. Bækur félagsins skulu vera endurskoðaðar og samþykktar af endurskoðendum fyrir aðalfund félagsins í september. Að endurskoðun lokinni skulu endurskoðendur mæta á fund stjórnar með bækur og þær athugasemdir sem kunnu að vera, og þær betrumbætur sem þeim þættu eðlilegar. Allir peningar félagsins skuli vera lagðir inn á reikning félagsins áður en aðalfundurinn er haldinn.
::SJOPPA
Val á sjoppustjóra:
Stjórnin skal finna hæfan sjoppustjóra sem best væri að sé staðsettur í Mosanum. Sjoppustjóri ræður opnunartíma sjoppunnar í samráði við stjórn.
::EIGNIR FÉLAGSINS
Reyna skal að hafa sem allra bestu stjórn á eignum félagsins s.s. áhöldum og fleiru. Til þess skal velja birgðarstjóra sem geymir eignir félagsins og heldur utan um þær skrá.
Val á birgðarstjóra:
Það er hlutverk stjórnar að finna hæfan birgðarstjóra, t.d. annan meðstjórnandann
::KVENNAKLÚBBUR
Innan Íslendingafélagsins er starfræktur kvennaklúbbur. Klúbburinn hefur ekkert fast aðsetur. Á fyrsta fundi hvorrar annar er dagskráin ákveðin. Þetta er mjög frjálslegur klúbbur þar sem allt milli himins og jarðar er rætt.
Stjórn kvennaklúbbsins er kosin á aðalfundi félagsins. Hún sér um að halda utan um dagskrána og senda út auglýsingar fyrir atburði. Klúbburinn er opinn öllum konum í sem að eru félagar í Íslendingafélaginu.
::LÖG ÍSLENDINGAFÉLAGSINS Í HORSENS
1. Kafli
Nafn og hlutverk
1 ¤ Félagið heitir Íslendingafélagið í Horsens (Den Islandske Forening i Horsens)
2 ¤ Heimilisfang félagsins er hjá formanni þess á hverjum tíma, ef félagið hefur ekki fast aðsetur.
3 ¤ Hlutverk félagsins er að stuðla að innbyrgðis samskiptum félagsmanna. Ennfremur skal félagið gangast fyrir dreifingu upplýsinga um félagsleg málefni Íslendinga á starfssvæði þess (m.a. upplýsingum um húsnæði og skóla). Tilgangi sínum hyggst félagið ná með samkomum (skemmtunum og félagsfundum).
4x vefsíðan félagsins er stærsti upplýsingamiðill félagsins og skal hun vera uppfærð með helstu atburðum hverju sinni.
2. Kafli
Félagar
5 ¤ Félagar geta orðið allir Íslendingar, sem búsettir eru í Horsens og nágrenni og aðrir þeir, sem hafa áhuga á málefnum félagsins.
6 ¤ Fullgildir félagar eru þeir sem greitt hafa ársgjald sem nemur 100 dkk á mann. Einstaklingar með börn greiða 100 dkk og hjón með börn 200 dkk. Teljast öll börn viðkomandi hjóna, sambýlisfólks eða einstaklings sem búsett eru á sama heimili að 18 ára og aldri (heimabúandi börn undir 18 ára aldri) innifalin í þessum gjöldun. Börn eldri en 18 ára greiða sjálfstætt gjald í félagið hvort sem að þau eru heimabúandi eða ekki. Gjaldið skal borga við inngöngu í félagið og gildir fyrir starfsárið. Starfsárið reiknast frá aðalfundi til aðalfundar. Félagsgjaldið skal ákveðið á aðalfundi. Fráfarandi stjórn skal leggja fram tillögu um félagsgjald á aðalfundi. Félagsgjald skal greiðast eigi síðar en mánuði eftir aðalfund.
3. Kafli
Aðalfundur og stjórn
7 ¤ Aðalfundur félagsins skal haldinn í september ár hvert. Til fundarins skal boðað með a.m.k. sjö daga fyrirvara. Löglegt er að boða til aðalfundar, félagsfunda og aukafunda með rafrænum hætti (með tölvupósti).
8 ¤ Dagskrá aðalfundar:
a. Fundur kýs fundarstjóra og fundarritara.
b. Skýrsla stjórnar um starfsemi síðasta árs.
c. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
d. Ákvörðun félagsgjalda.
e. Lagabreytingar.
f. Stjórnarkostningar.
g. Kosning nefndarfulltrúa og tveggja endurskoðenda.
h. Önnur mál.
Aðalfundur er lögmætur ef til hans er boðað á lögmætan hátt.
9 ¤ Fráfarandi stjórn skal skila af sér endurskoðuðu bókhaldi. Æskilegt er að fráfarandi stjórn skili af sér a.m.k 3000 dkk til nýrrar stjórnar.
10 ¤ Allt lausafé félagsins skal vera inni á reikningi félagsins við aðalfund.
11 ¤ Ef gerðar eru tillögur um breytingar á lögum félagsins fyrir aðalfund skulu þær berast stjórn félagsins fyrir 20. ágúst og sé þeirra getið í fundarboði. Fundarstjór ræður hvort að taka eigi upp tillögur á fundi sem að ekki hafa borist stjórn fyrir fundinn.
12 ¤ Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir þeir sem skráðir eru í félagið-greitt hafa sín félagsdjöld-þurfa þá að sitja fundinn til að greiða sitt atkvæði.
13 ¤ Til að breytingartillögur nái fram að ganga þarf 2/3 hluta atkvæða. Í öðrum málum ræður meirihluti atkvæða.
14 ¤ Aðalfundur kýs
-Formann
-Gjaldkera
-Ritara
-Formann skemmtinefndar
-Formann íþróttanefndar
-Tvo meðstjórnendur
-Tvo varamenn
15 ¤ Stjórnarmenn eru undanþegnir félagsgjöldum.
16 ¤ Stjórn félagsins er skylt að boða til auka aðalfundar ef minnst helmingur félaga óska þess.
4. Kafli
Slit félagsins
17 ¤ Ef til félagaslita kemur skal síðasti aðalfundur ráðstafa eignum félagsins.