::Hérna geta félagsmenn komið með fyrirpurn til stjórnar. Svar mun birtast hér fyrir neðan strax eftir stjórnarfundi.
::Hver spyr
::Netfang
::Spurning til stjórnar
::Fyrispurnir teknar fyrir á stjórnarfundi 12. desember 2006
1. Sæl Er að bregðast við ósk ykkar um að fá hjálp eða ábendigar um atburði Þá er ég að sjálfsögðu reiðubúinn að hjálpa til við það en þá vantar mig kannski uppls. um forsendur þ.e.a.s hvernig vill stjórnin standa að þessu og hvað má þetta kosta og þess háttar praktískar uppl. svo maður segi ekki eitthvað við einhvern sem svo ekki er framkvæmalegt Kveðja Valþór P.S keep up good works
2. Af hverju er ekki hægt að halda svona trubbakvöld a skolabarnum td. þa fæst innkoma fyrir selda drykki og ef þið talið við islenskann trubador vill hann alltaf eitthvað fyrir sinn snuð og oft erþað þa aðgangseyrir en i þessu tilfelli finnst mer sanngjarnt að borga flugmiða og uppihald þar sem aðgangseyrir er engin eða að rukka kansk 50kr inn a barinn en það er fraleytt að borga undir fleiri en einn mann þar sem bara annar þeirra spilar. eg get lika frætt ykkur a þvi að landsþekktir menn i þessum bransa eru mjög dyrir og a þvi verði að felagið mun ekki raða við það en eg þekki nokkra sem væru pottþett til i að koma fyrir þessi byti og mjög auðvelt er að semja við. : Arni þor guðjonsson sem er stofnandi og fyrrverandi gitarleikari lands og sona. Hreimur örn Heimisson söngvara lands og sona, Halldor Geir Jensson blusfrömuður. Þorsteinn Darri sigurgeirsson blusfrömuður og Þor Oskar fitzgerlad ! sem hefur unnið trubadora kppni islands 3 ar i röð og hefur spilað með storum erlendum gruppum. Hafsteinn Mar haugsen.......þetta eru allt menn sem eg get haft samband við og kannað hvernig jarvegurinn liggur ef fyrir þvi er ahugi hja ykkur nefndarfolkki og eg tel að þetta seu allt menn sem hægt se að semja auðveldlega við, ekki kannski stærstu nöfnin en samt með þeim betri i bransanum....
Svar við þessum tveimur fyrirspurnum:
Stjórn hefur í hyggju að aðstoða listamenn með því að liðka fyrir heimsóknir þeirra til okkar með þeim hætti að aðstoða þá við leit að húsnæði fyrir viðburðinn - leit að gistinu fyrir listamanninn-og ath með hljóðfæraleigu ef að þess er þörf á. Félagið hefur ekki í hyggju að leggja út beinann kostnað vegna atburðarins. Heldur þó að listamaðurinn taki til sín aðgangseyri sem að greiddur væri inná atburðinn.
3. Kæra stjórn, Inn á heimasíðu Íslendingafélagsins má finna lögin sem félagið starfar eftir. Þau lög voru endurskoðuð á aðalfundi í september 2006. En þessi lög voru birt á heimsíðunni fyrir nokkrum vikum. Í 15. gr. núverandi laga (9.12.2006, www.ifhorsens.dk) kemur fram að: Þeir stjórnarmeðlimir og makar þeirra að ávallt sitja fundi eru undanskildir félagsgjöldum ásamt vefsíðustjóra -og formanni skemmtinefndar. Einnig eru sjoppustjórar undanskildir félagsgjöldum fyrir vinnu sína ásamt þeim sem að láta af rafmagn fyrir 17 júní hátið og ratleik í mosanum. Það vekur undrun okkar að þessi grein var ekki svohljóðandi síðast þegar við lásum lögin og ekki munum við eftir því að þessi lagabreyting hafi verið samþykkt á síðasta aðalfundi. En þá hljóðaði þessi svokallaða lagagrein þannig að: Stjórnarmenn eru undanþegnir félagsgjöldum. Við þurfum varla að minna stjórnarmeðlimi á að lagabreyting getur aðeins orðið á aðalfundi félagsins og með kosningu félagsmanna. Því langar okkur til að vita hvers vegna þessi breyting á 15. gr. hefur náð fram að ganga og á hvaða forsendum?
Svar:
Við viljum byrja á þvi að þakka fyrir ábendinguna og það er ánægjulegt að sjá að fólk les reglulega jafnt og þétt vefsíðu félagsins og lög þess. En þar sem að þetta hefur viðgengist sl. ár að viðkomandi aðilar - þ.e sjoppustjórar (fyrir alla þá vinnu sem að þau leggja fram við sitt verkefni án nokkurrar greiðslu) og það fólk sem að hefur skaffað okkur rafmagn sem að við þurfum á að halda við þær skemmtanir sem að við höldum nálægt þeirra húsakynnum án endurgjalds að þessir viðkomandi aðilar þurfi ekki að greiða félagsgjöld IFH. Stjórn yfirsást að leggja þetta fram á sl. aðalfundi til samþykktar en fyrir mistök var þetta sett inn í lögin sem að sjálfsögðu átti ekki að gerast en mun hér með taka þetta út úr lögum og sjá þá til þess að þetta verði tekið fram á nærsta aðalfundi til samþykktar félagsmanna.