ifhorsens.dk | Íslendingafélagið í Horsens | Fundargerðir



      

 


 



::Hér verða birtar fundargerðir stjórnar

 


Stjórnarfundir starfsárið 2009-2010

26. október 2009

 

Annar fundur stjórnar ÍFHorsens

-Starfsárið 2009-2010

 

Fundinn sátu: Gauja, Soffía, Lena, Ásgerður, Sibbi, Atli Sigmar og Atli V.

Málefni kvöldsins:

 

1.       Skógarferð í Bygholm park og Nýbúaballið fóru vel. Það var góð mæting á báða viðburði og almenn ánægja með daginn. Samt sem áður er spurning hvort að við tökum sjálf að okkur þrif á skólabarnum eftir viðburði í framtíðinni. Það sparar okkur 500 kr. í hvert skipti og tekur ekki það langan tíma.

 

2.       Fyrsta pókerkvöld var haldið 2. október þar sem það stangaðist á við keilukvöld hjá kvennaklúbbnum.  Keyptur var einhver bjór en það seldist aðeins lítill hluti hans.

-          Það þyrfti að ræða við kvennaklúbbinn um að panta ákveðna daga fyrir þessi mánaðarlegu pókerkvöld og annað svo hlutir skarist ekki á hjá okkur (Gauja).

-          Fyrir næsta pókerkvöld ætlum við líka að bjóða upp á gos og mögulega eitthvað sælgæti ef það verður komið.

-          Næsta pókerkvöld verður haldið föstudaginn 13. nóvember. 

 

3.       Piparkökugleði og jólaföndur verða haldin föstudaginn 4. eða sunnudaginn 6. desember (annar í aðventu). Viðburðurinn verður í höndum IFH, ekki kvennaklúbbsins eins og var gert ráð fyrir á síðasta fundi.

-          Það þarf að hafa samband við Egebjergskóla um að fá að vera þar (Soffía).

-          Það þarf líka að taka saman hvað og hversu mikið þarf að kaupa inn (Gauja).

 

4.       Jólamessa: Jólamessan verður haldin 13. desember (þriðji í aðventu) kl. 13. Sibbi hefur talað við prestinn og kirkjuna svo allt er klappað og klárt. J

 

5.       Skatan: Undirbúningur stendur enn yfir.

-          Til að komast að þvi hvenær þarf að opna og loka skráningu þarf að komast að því hvernig er best að senda varninginn hingað og hvað þarf að panta með miklum fyrirvara. (Atli V.)

 

6.       IFHorsens facebooksíða er nú starfrækt. Ef einhver vill fá aðgang að henni til að setja inn tilkynningar, auglýsingar o.þ.h. er hægt að hafa samband við Atla Sigmar.

 

7.       Heimasíða IFHorsens er enn í einhverju ólagi, enn virðist erfitt að setja inn tilkynningar á spjallið og margar kvartanir hafa borist vegna þessa. 

-          Tala þarf við Tidda um að athuga þetta. (Lena)

 

8.        Þýskalandsferð: Það mætti skipuleggja Grensuskrepp á næstunni, þar sem þarf að kaupa inn fyrir piparkökugleði og jólaföndur, bjór og gos fyrir póker (ef það má!), fótbolta og pókerchips.

-          Það þarf að athuga hvað er til í geymslunni svo við vitum hvað þarf að kaupa. Einhvers staðar ætti að vera til listi yfir það sem er til. (Gauja)

-          Það þarf að komast af því hvort megi selja Grensubjór/gos í pókernum, af hverju var það ekki gert á síðasta starfsári? Senda meil á Ingu Lóu og spyrja. (Lena)

 

9.       Geymslan: Búið er að framlengja og borga leiguna næstu 3 mánuði (fram í janúar). Það er ennþá spurning um að finna pláss til að geyma eigur félagsins á betri (helst fríum) stað sem hægt er að komast auðveldlega í, ekki bara ákveðna daga í viku!

-          Soffía hefur boðist til að skoða möguleikann á að geyma þetta í "mansioninu" hennar, hún ætlar að ræða við húsbóndann á heimilinu til að fá leyfi J (Þetta er að sjálfsögðu grín, hún ER húsbóndinn á sínu heimili haha)

 

10.   Félagaskrá: Við höfum enn ekki undir höndum rétta félagaskrá á tölvutæku formi. Sú sem við fengum frá Ingu Lóu í byrjun starfsársins hefur engin skráð símanúmer, heimilisföng ofl. sem við þurfum til að senda út gíróseðlana.

-          Hafa þarf samband við Önnu, Írisi og/eða Ingu Lóu og fá senda réttu skrána. (Soffía)

-          Uppfæra þarf skrána með nýjum félagsmönnum. (Soffía) (Lena hefur tekið við einhverjum greiðslum frá nýjum meðlimum og þarf að áframsenda upplýsingarnar á Soffíu)

-          Senda uppfærðu skrána á Tidda til að setja inn á síðuna. (Soffía)

-          Einnig þarf að senda inn skjal um börn félagsmanna til kommúnunnar til þess að fá styrk vegna þeirra. (Soffía)

 

11.   Félagsgjöld: Einhverjar greiðslur hafa þegar borist en nú þarf að fara að útbúa gíróseðla sem við höfum ákveðið að ganga sjálf með í hús. Við ætlum að hittast á mánudagskvöldið 9. nóvember, prenta út límmiða og gera seðlana tilbúna. Svo skiptum við einfaldlega með okkur hverfum og göngum í hús. Þeir seðlar sem fara út fyrir svæðin sem stjórnin býr á geta farið í póst.

-          Eru til límmiðar til að prenta á? Ef ekki, kaupa þá! (Lena)

-          Senda tölvupóst á bankann og athuga hvort hægt sé að nota þá gíróseðla sem eru til þó þeir séu merktir Ingu Lóu og hennar gamla heimilisfangi. Ef ekki, panta nýja! (Lena)

 

12.   Sjoppan: Ennþá á eftir að fá sent nammi að heiman!

-          Megum við koma nammi fyrir í gámnum sem á að koma í desember? (Atli V.)

-          Hvaða nammi/hversu mikið á að panta? (Atli S.)

-          Hafa samband við stelpurnar heima og sjá hvort þær nenni að versla inn nammið og koma því í gáminn. (Lena)

 

13.    Boltaskortur: Það vantar bolta og fleira íþróttadót fyrir íþróttanefndina.

-          Athuga verð. (Atli V.)

 

14.   VIA húsnæði: Það hefur verið erfitt að ná sambandi við gæjann í VIA sem gefur okkur leyfi til að nota húsnæðið. Það gæti verið sniðugt að taka saman allar dagsetningar sem okkur vantar húsnæði og senda bara allar í einum tölvupósti á þennan týnda mann! (Ásgerður)

 

15.   Lagabreytingin sem við ræddum á síðasta fundi hefur ekki enn komið inn vegna tæknilegra örðuleika. Það fer hér með í gang. (Soffía)

 

Næsti fundur verður haldinn þann 16. Nóvember kl. 20:30 heima hjá Gauju.


 


Fundargerð fyrsta stjórnarfundar 10. september 2009

10. september 2009

Fyrsti fundur stjórnar ÍFHorsens
-Starfsárið 2009-2010

Fundinn sátu: Gauja, Lena, Ásgerður, Sibbi, Atli Sigmar og Atli V.
Málefni kvöldsins:

- Útbúa grófa dagskrá fyrir starfsárið
- Geymslan
- Íslendingafélagið á Facebook
- Félagaskrá
- Félagsgjöld, gíróseðlar
- "Kontakt" listi stjórnar
- Sjoppan
- Breyting á lögum


1. Dagskrá starfsársins
Skógarferð í Bygholm park
- Verður í Bygholm park laugardaginn 12. September næstkomandi. Boðið verður upp á grillaðar pylsur, meðlæti og gos.
- Undirbúningur:
. Kaupa pylsur, pylsubrauð og tilheyrandi (Lena og María)
. Koma grilli og veitingum í garðinn (María)
Nýbúaball
- Verður haldið á skólabarnum laugardagskvöldið milli 22:00 og 02:00. 
- Undirbúningur:
. Fá ágóðann af ballinu og leggja inn. (María og Lena)
. Borga leiguna fyrir barinn. (Lena)

Mánaðarleg pókerkvöld
- Þessi atburður hefur sífellt orðið vinsælli meðal karlmanna í félaginu og hefur skapað góða innkomu. Þess vegna hefur stjórnin tekið þá ákvörðun að pókermót  verði haldin í upphafi hvers mánaðar. Rætt var að prófa að halda þau fyrsta hvern fimmtudag í mánuði til að byrja með og sjá hvernig mætingin verður fyrst um sinn. Fyrsta pókerkvöld verður haldið þann 1. október næstkomandi og vonum við að sem flestir mæti. Áhugasamir skrái sig hjá Atla Sigmari á póstfanginu atlisigmar@gmail.com. (Kvennaklúbburinn verður víst með keiluhitting sama kvöld þannig að pókerinn verður haldinn á föst. 2. okt í staðinn!)
- Undirbúningur:
. Tala við skólann og fá leyfi. (Ásgerður)
. Kaupa bjór. (Atli S. og Lena)
. Redda og gera tilbúið pókerforrit. (Atli S.)
. Kaupa pókersett fyrir félagið? (Lena og Atli S.)
 Piparkökugleði
- Verður haldin í lok nóvember/upphafi desember. Tillaga var að gleðin yrði haldin á öðrum í aðventu sem er þann 6. Desember. Atburðinn þarf Kvennaklúbburinn að undirbúa með góðum fyrirvara hvað varðar innkaup fyrir kvöldið og hafa samband við Lenu gjaldkera.
Jólamessa
- Ef presturinn og kirkjan eru laus verður messan haldin á þriðja í aðventu; þann 13. Desember. Annars verður hún haldin á dögunum í kring.
- Undirbúningur:
. Hafa samband við séra Þóri Jökul Þorsteinsson, sendiráðsprest Íslendinga í Kaupmannahöfn vegna messuhaldsins. Símanúmer: 3325-0707, tölvupóstfang: thorir.j.thorsteinsson@utn.stjr.is (Sibbi)
. Hafa samband við Hansted kirkju. Símanúmer: 7565-6412 (Sibbi)
Skötuhald
- Verður á Þorláksmessu, miðvikudaginn 23. desember. Enn á eftir að ákveða verð og annað sem kemur í ljós síðar.
- Undirbúningur:
. Tala við skólann og fá leyfi og upplýsingar um hvað muni kosta að fá einn starfsmann frá mötuneytinu til að vinna um kvöldið. (Ásgerður)
. Við þurfum að komast að því hversu margir komu og hversu mikið magn af mat þurfti í fyrra og hversu mikinn fyrirvara þarf  til að panta matinn upp á hvenær skráningu á að ljúka. (Gauja)
Jólasveinar
- Jólasveinar ganga í hús þann 24. Desember og gleðja krakkana. Stjórnin telur þörf á fleiri jólasveinum en síðast sem þá voru fjórir. Best væri líklega að panta sex stykki káta sveina og spurning er um að kaupa tvo búninga til viðbótar við þá fjóra sem nú eru til.
Jólaball
- Verður haldið sunnudaginn 27. Desember í VIA skólanum. Útvega þarf sælgæti, mandarínur ofl. sem kemur að síðar.
- Undirbúningur:
. Tala við skólann og fá leyfi (Ásgerður)
Jólapakkar
- Reynt verður að bjóða upp á ódýra leið til að koma jólapökkunum heim til Íslands fyrir félagsmenn eins og hefur verið áður.
- Undirbúningur:
. Hafa þarf samband við önnur Íslendingafélög á Jótlandi og sjá hvort best sé að sameinast um að senda heim pakka. Einnig þarf að hafa samband við Eimskip og Samskip varðandi verð osfrv. (Gauja)
Áramótabrenna
- Fögnum áramótunum að íslenskum sið.
- Undirbúningur:
. Hafa þarf samband við Bjarne og finna dagsetningu fyrir brennuna. (Gauja)
Þorrablót
- Verður haldið 20. Febrúar 2010 í Egebjerg hallen salnum sem hefur þegar verið pantaður.
- Undirbúningur (að langmestu leyti í höndum Þorrablótsnefndarinnar)
. Nefndin ætlar að skoða möguleikann að panta rútur fyrir þá sem hafa langt að fara. Gott væri að hafa varaáætlun um sal og má þá mögulega hafa Hatting húsið í huga. Nefndin þarf að muna að skoða aðstöðuna á svæðinu. Síðast kom það upp á að allt leirtau var flutt óhreint upp í skóla þar sem það var vaskað upp vegna lélegrar aðstöðu. Einnig þarf að hafa samband við stjórnina í Odense og jafnvel víðar varðandi að sameinast um sendingu á veitingunum.
Festilavn
- Verður að venju haldin hátíðleg með balli í Egebjerg skóla þar sem sleginn verður kötturinn úr tunnunni og tilheyrandi fjöri. Komast þarf að því hvenær hátíðin verður (Sibbi) en frekari undirbúningur hefst síðar.
Páskabingó
- Verður haldið sunnudaginn 28. mars í Egebjerg skóla eins og áður. Sibbi vill ólmur sjá um bingóið. Undirbúningur hefst síðar.
Vorhátíð og ball
- Verður haldið 15. Maí 2010. Undirbúningur hefst síðar.
Þjóðhátíðargleði 17. Júní
- Verður haldin fimmtudaginn 17. júní 2010. Undirbúningur hefst síðar.
Kvennahlaupið
- Allur undibúningur verður í höndum Kvennaklúbbsins.
Sumarfrí
- Dagsetningar hafa ekki verið festar enn.
Verslunarmannahelgargleði
- Atburðurinn gekk vel síðast og ákveðið hefur verið að undirbúa aftur svipað húllumhæ árið 2010. Rætt hefur verið að setja upp partýtjöld og fá trúbador/a til að spila. Undirbúningur hefst síðar.

2. Geymsla
Geymsla er nú í leigu undir eigur Íslendingafélagsins en samningurinn rennur út í lok september. Ef ekki tekst að finna annað þarf að framlengja samninginn tímabundið. Geymslan kostar 250 dkr. á mánuði og aðeins er hægt að fá aðgang að henni tvo virka daga í viku sem hentar illa þegar viðburðir eru venjulega haldnir um helgar og þarf þá að komast í gos og fleira. Vonandi verður hægt að finna annan kost, mögulega er einhver tilbúinn að bjóða fram geymslupláss sem við getum notað. Við getum samt sem áður fest ákveðna daga sem við höfum aðgang að henni til að ónáða síður eigendurna.
- Framlengja leiguna á geymslunni amk í tvo mánuði til viðbótar. Símanr. og frekari upplýsingar ættum við að geta fengið hjá Maríu. (Gauja)
- Setja inn auglýsingu á www.ifhorsens.dk til að sjá hvort einhver er tilbúinn til að bjóða fram geymslupláss. (Atli V.)

3. Íslendingafélagið á Facebook
Ákveðið hefur verið að stofna Facebook síðu fyrir félagið sem getur sent út tilkynningar, fréttir ofl. (Atli S.)
4. Félagaskrá
- Skrána þarf að nálgast og uppfæra hana með nýjum skráningum sem berast á tölvupósti í gegnum heimasíðuna. Samkvæmt lögum félagsins þarf ritari að uppfæra skrána minnst tvisvar á starfsári. (Soffía)

 

5. Félagsgjöld
Nú þarf að fara að rukka félagsgjöldin sem ákveðið var að halda óbreyttum á síðasta aðalfundi. Senda þarf út gíróseðla sem geta verið kostnaðarsamir og því kom upp hugmynd um að setja upp bás og bjóða fólki að borga í reiðufé uppi í VIA skóla í einhverja daga. Síðar gætum við sent seðlana í framhaldi til þeirra sem ekki borga þá.
- Senda út orð og setja upp bás í skólanum einhvern hentugan dag/daga. (Lena)
- Athuga stöðuna á gíróseðlunum og panta fleiri ef vantar. (Lena)

6. Kontakt listi stjórnar
Setja þarf myndir og upplýsingar inn á heimasíðuna um þá sem sitja í stjórninni sem fyrst. Þar þurfa að koma fram full nöfn, titlar, símanúmer, heimilisföng og netföng.
- Safna upplýsingum og senda á Tidda sem fyrst. (Lena)
7. Sjoppan
Ekkert nammi er til eins og er en vonandi verður hægt að vera með íslenskt til sölu á viðburðum félagsins. Það kostar ansi mikið að senda nammi frá Íslandi hingað út svo við ætlum öll að muna að hafa augu og eyru opin fyrir nýjum Horsens búum sem eru að flytja búslóð í gámi hingað út. Mögulega getum við fengið að troða inn ef pláss leyfir.
- Setja inn auglýsingu á heimasíðuna og biðja fólk að láta vita af nýbúum. (Atli S.)
8. Lagabreyting
Samþykkt var á aðalfundi félagsins að breyta einum lið laganna hvað varðar tímasetningu fundarins. Ákveðið var að færa hann framar á árið og verður hann því haldinn í apríl/maí í framtíðinni. Umræða kom upp á fundinum að jafnvel yrðu haldnir fleiri opnir fundir á árinu sem félagsmenn væru velkomnir á og gætu þá komið skoðunum sínum á framfæri. Ekkert var ákveðið í þessum efnum.
- Umorða/ breyta lögum og senda á Tidda til að setja inn á heimasíðuna. (Soffía)
 
Næsti fundur verður haldinn þann 19. Október kl. 20:30 heima hjá Gauju.


Stjórnarfundir starfsárið 2008-2009
Fyrsti Fundur Íslendingafélagsins í Horsens
Starfsárið 2008 - 2009
Mættir: Inga Lóa, Anna Guðný, Kristín Alma, María, Íris og Binna.
Fundur settur 20:00
Gerð voru drög að dagskrá fyrir komandi starfsár og hljómar hún nokkurn veginn svona: (ekki endanleg)
Nóvember 2008
6. Nóvember:  Strákakveld- Póker
29. Nóvember:  Piparköku gleði
Desember 2008
8. - 15. Desember:  Jólamessa
23. Desember:  Skötuveisla
27. Desember:  Jólaball
31. Desember:  Áramótabrenna
Janúar 2009
17. Janúar:  Göngugleði
29. Janúar:  Spilakveld
Febrúar 2009
7. Febrúar:  Fjölskyldudagur
21. Febrúar:  Þorrablót
Mars 2009
1 mars:  Festilavn
20. Mars:  Pöbbarölt
Apríl 2009
11.  Apríl:  Páskabíngó
Mai 2009
16. Mai:  Vorhátið og Ball
Júní 2009
17. júní
Kvennahlaup
Júlí 2009
Sumarfrí
Ágúst 2009
Sumarfrí
September 2009
5. September:  Skógarferð
12. September:  Aðalfundur og Ball
Hlutir sem þarf að athuga og/eða græja eru:
1. Finna stað fyrir böll, þarf að hafa veitingaleyfi
i) Íris ætlar að athuga með samkomuhús í Egebjerg
ii) Allar hugmyndir vel þegnar
2. Sameinast öðrum íslendingafélugum með sendingar frá Íslandi-Páskaegg, Þorramat og fleirra
3. Koma Þorrablótsnefnd í gang -íris
i) Veislustjóra
ii) Flugmiða
iii) Styrki
iv) Hljómsveit
v) Td. Athuga með samstarf við leigubíla í Horsens

4. Jólapakkasendingar til og frá Íslandi - KAS
5. Jólasveinar á Aðfangadag - María
i) Finna hús fyrir móttökustað
ii) Fjárfesta í 2 búningum
6. Útskriftargjafir- Kom upp hugmynd um að veita gjafir fyrir góðan árangur íslendinga í námi og yrðu þá greiddir meðlimir með í "happdrætinu" Athuga hvort þetta sé möguleiki eða ekki
7. Heimasíðan
i) Þarfnast uppfæringa á upplýsingum
ii) Fleirri hugmyndir svo sem afmælisdagar eða uppskriftir og fleirra
8. Endurskoða Lög Íslendingafélagsins - Úrelt
9. Nammi - Finna influtningsleið
10.  Selja Hryggi og læri - athuga með það
11.  Vantar tekjur
12. KAS athuga með hugmynd um jólapakka fyrir bágstadda
13. Endurvakning Eyjólfs tímarit félagsins
14. Reikningar græjaðir á næsta fundi

Samið var um að fundir yrðu haldnir hjá Brynhildi Jóns. =)
Og mánudagar besti kostur en með fyrirvara.

Fundi slitið klukkan 23:55
Næsti fundur 23. Október 2008 kl 20:00
Hjá Brynhildi Jóns

Íris Ósk Ólafsdóttir


Annar Fundur Íslendingafélagsins í Horsens
Starfsárið 2008 - 2009
Mætir: Inga Lóa, Anna Guðný, Binna, María, og Íris
Fundur settur 20:00
Mál á dagskrá:
1. Pakkasending
2. Messa
3. Piparkökur
4. Jólapakkar
5. Áramótabrenna
6. Skatan
7. Póker
8. Skemmtinefnd
9. Þorrablótsnend
10. Húsnæðisleysi
11. Samstöðufundur
12. Önnur Mál
Pakkasending:
Upplýsingar
Brottför: Föstudagurinn 5.des. 2008 frá Aarhus
Heimkoma: Þriðjudagurinn 9. Des. 2008 til Ísl
Skila þarf pökkum inn Þriðjudaginn 2. Des 2008 á milli 19:00 - 20:00
Verð: 330 DKK
Eftir:  Maria ætlar að athuga með Hús í mosanum og það þarf að setja inn auglýsingu og Eyðublað á ifhorsens.dk
Messa:
Upplýsingar
Sunnudagurinn 14. Des 2008 kl 14:00 í Hansted kirkju
Búið er að fá leyfi fyrir Kirkjunni og Presturinn ætlar að koma.
Eftir er að fá leyfi fyrir safnaðarheimilinu fyrir kaffið en e-mailið á að koma inn fyrir eða eftir helgi.
Piparkökur:
29.Nóv 2008 í Egebjerg skóla
Fáum húsið kl 10:00 til 15:00
Mæting er kl 11:00 til 15:00
Jólapakkar í Horsens:
Bjarne búin að gefa leyfi fyrir tómu húsi til að skila inn pökkunum. Vantar að fá jólasveina til að dreifa út pökkunum. Talað við grýlu á næstu dögum.
Áramótabrenna:
31.des 2008
Bjarne búinn að gefa leyfi fyrir brennunni í ár.
Jólaball:
27. des. 2008
Búið að fá leyfi fyrir kantínunni.
Skatan:
Vantar húsnæði.
Nokkar hugmyndir í gangi. Td. Vesthallen, "hliðiná nettó hús", Forsamlingshúsið í Egebjerg.  En það þarf að halda áfram að "brainstorma".
Póker:
Fá leyfi fyrir kantínu.
Safna kittum.
Gera Auglýsingu

Skemmtinefnd:
Ætlar að "brainstorma" um föndur, jólaball, brennu, fjölskyldudag, og Þorrablót
Þorrablótsnefnd:
Ætlar að hittast í viku 45 og koma hlutum á hreint eins og með veislustjóra, flugferðir, ath. Með styrki, hús í staðinn fyrir Vesthallen ef mæting verður dræm.
Húsnæðisleysi:
Vantar hús fyrir Böll, skötu, þorrablót
María og Binna ætla á Kommune til að athuga með sali.
Samstöðufundur:
Inga Lóa og María ætla versla kaffi, djús og Mjólk.

Fundi slitið um 11 leytið.
Næsti fundur 17. Nóv 2008 kl 20:00 hjá Binnu Jóns


Þriðji Fundur Íslendingafélagsins í Horsens
 Starfsárið 2008 - 2009
Mætir: Inga Lóa, Anna Guðný, Kristín Alma, Binna, María, Íris og Atli
Fundur settur 20:00
Mál á dagskrá:
. Pókerkveld-
Heppnaðist vel og ca. 1000 kall í plús fyrir Bjórsölu -
Mikill áhugi fyrir að endurtaka leikinn
. Húsnæði
Athuga með húsnæði fyrir nokkar atburði ( Binna og María ) - Gleymdist en lofuðu að græja það fyrir næsta fund
. Jólapakkar
2 des 18-19
Staður= Engblommevej 115 (sem reyndar breyttist í Mosevangen 32)
. Piparkökugleði
Hverjir ætla vera= Skemmtinefnd mæta 10 Inga Lóa, Anna, Íris og Atli geta komið
Hvað á að gera= Snjóhús úr piparkökum, mála piparkökur, lita, gera músastiga...
Hverjir ætla versla= Binna og Anna
Græjur og Jólatónlist= Binna
Annað= KAS græja uppskrift fyrir kakó
. Skatan
Staðsetning= Íris byðja Garðar sinn að tala við liz í kantínu. (komið í gegn)
Skatan sjálf= Allt í skoðun En Frikki ætlar að tala við mág sinn um að fá skötu
Sending= Í samstarf við Arhus (í skoðun)
Hverjir verða á svæðinu= Íris (Garðar sinn), Anna (Örn sinn), María, Inga Lóa, Binna
. Pöntun á nammi
Ákveðið að panta nammi og bjóða uppá að konfekt (með fyrirfram pöntun) pantað var jólasveina nammi (150 stk)- Inga lóa ætlar að sjá um þetta
Gámurinn kemur 15 desember
. Annað
Myndir á heimasíðuna (íris og Anna senda myndirnar frá pókerkveldinu til Frikka)
Körfubolti=Athuga með nýjan tíma og jafnvel eikkað fyrir krakkana ( Atli ætlar í það)

Til að samla saman:
Binna: Piparkökugleði (versla ) og athuga niðrá kommune með sal,
Atli: Tala við Rúnar um Brennuna um áramótin og athuga með sal fyrir körfu og/eða fótbolta
Íris: Tala við Garðar sem ætlar að tala við Liz um að fá að halda Skötuna í Kantínu og koma með kleinur á næsta fund.
KAS: Senda e-mail á Frikka og Sibbu með staðsetningu á jólapakkasöfnuninni, Og senda uppskrift á Binnu með kakó fyrir piparkökugleði.
María: Kommuna ath með sal
Anna: Fara yfir nótur og stemma netbankann og versla með Binnu fyrir Pipargleði
Inga Lóa: Skatan, Hús, Panta nammi
Fundi slitið og þökkum við Ingu Lóu og Binnu fyrir FRÁBÆRAR veitingar (einstaklega góðar)
Næsti fundur mánudaginn 8. Desember 2008 kl 20:00 hjá Binnu


Fjórði fundur Íslendingafélagsins í Horsens Þann 08.12.2008 Klukkan 20.00
 Starfsárið 2008-2009

Mættir: Anna Guðný, María, Inga Lóa, Kristín Alma, Atli og Binna

Mál á dagskrá:

. Uppgjör piparkökugleiðinnar:
1. Heppnaðist í allastaði vel, hefði mátt vera meira skipurlag hjá skemmtinefnd.
2. Fólk var almennt ánægt með frammistöðuna.
3. Kostnaður var: -1073.41 DKK

. Hvernig gekk (Binna):
1. Allt gekk vel ? Binna/skemmtinefnd ætlar að fara í gegnum það sem er til í föndurkassanum.
2. Gera smávegis skýrslu um hugmyndir frá þessu ári og þá hvað þarf að vera til fyrir föndrið ?
3. Athugar hversu mikið var keypt af mjólk, flórsykri. fleira setur í skýrsluna.
4. Athuga með kramarhúsin, er hægt að fá þau tilbúin fyrir næsta ár?

. Hvernig gekk jólapakkadæmið (Kristín):
1. Gekk mjög vel, mun færri sem nýttu sér þjónustuna í ár frá því í fyrra. (19 pakkar)
2. Tók 2-2 ½ tíma.

. Húsnæði á Kommune (Binna & María)
1. Eru ennþá að bíða eftir svari frá þeim, ætla að senda annað e-mail og ath hvort ekki sé hægt að fá lista yfir samkonuhús í boði.

. Greidd félagsgjöld (Anna):
1. Alls hafa 92 greitt félagsgjöldin þann 08.12.08

. Jólamessa:
1. Gleymdist að panta safnaðarheimilið. Inga Lóa ætlar að reyna að ná í Torben.
2. Þarf að kaupa í kaffið (kakó-ið) eftir messuna. Ath. Muna að skila málningu í Zap-In?Anna og María fara á föstudaginn 12.12.08
3. Keypt verður í rúgbrauð fyrir skötuna á föstudaginn 12.12.08

. Skatan
1. Keypt var Vestfirsk skata (700 kr) alls var pöntuð 30 kg ? uppselt í skötuna
2. Saltfiskurinn kemur frá Vogunum (ókeypis) alls var pantað 25 kg ? enn laust í fiskinn
3. Raggi hefur keypt tólg og hnoðmö. ? fer af stað til DK fimmtudaginn 11.12.08
4. Bjartur (kantínu VIA) bauðst til að panta fyrir okkur kartöflur, smjör og rófur fyrir skötuna. (minna kappann á það)
5. Bökuð verða rúgbrauð þann 13.12.08 heima hjá Írisi (Grusdalsvej 24, Egebjerg) Mæting klukkan 13.00
6. Það þarf að kaupa pylsubrauð, remolaði, tómatsósu, steiktan lauk og hráan lauk. ? Anna & María 12.12.08
7. Binna athugar með íslenskt brennivín í NETTO
8. Þeir sem verða á staðnum fyrir skötuna: Anna, María, Inga Lóa, Binna, Íris, Örn (hjálpar)
9. Mæting klukkan 09.00!
10. Ath. Með skipurlag á staðsetningu upp besta flæðið!

. Nammi:
1. Pantað var nammi frá Nóa fyrir 5500 DKK (90kg) Kemur til Horsens 16.des

. Jólasveinar fyrir aðfangadag:
1. Enn vantar káta kalla í þetta hlutverk.
2. Uppástungur: Hallur - Andri - Rúnar - Hilmar - Garðar - Dóri Karls.

. Jólaball 27.des:
1. Tónlist, María athugar með mömmu sína.
2. Boðið verður uppá kakó
3. Anna athugar hversu mikið var keypt síðasta ár.
4. Anna talar við Schilling húsvörð, minnir á að taka ekki jólatréð niður, sjá hvort við þurfum að taka það niður sjálf, og ef svo er, hvert á að fara með það?
5. Kristín Alma athugar með leyfi frá lögreglunni fyrir brennuna.
6. Binna athugar með Kidda, hvort hann vilji enn vera brennukóngur
7. Inga Lóa ætlar að kaupa 2 jólasveina búninga og strigapoka fyrir ball/aðfangadag.

. Enn er óákveðið hver tekur við skemmtinefndinni.

Næsti fundur 18.des klukkan 20.00 heima hjá Binnu ?


Fimmti Fundur Íslendingafélagsins í Horsens
 Starfsárið 2008 - 2009
Mætir: Inga Lóa, Anna Guðný, Binna, María og Íris
Fundur settur 20:00
Mál á dagskrá:
Uppgjör Jólamessunar:
Gékk vel kostaði 800kr og vel mæt um 80 manns. ... ætlar að skrifa um atburðin.
109 Manns búin að borga félagsgjöld
Skatan:
63 í skötu, 26 í saltfisk, og 56 í pylsur samtals 145
Inga Lóa ætlar á grensu og kaupa Fanta x2, 7up x2, Max x2, pepsi x2, zero x1.
Inga og Anna ætla versla allt fyrir skötuna og björin er þar á meðal Tuborg x2 og Carlsber x2 og einn jólabjórskassi. Allt í gleri. Íris og Garðar ætla útvatna saltfiskin.
Jólapakkar á Aðfangadagsmorgun:
M-62, Anna, Inga Lóa og Íris ætla mæta 9. Hafa með sér penna, post-it og heftara.
Jólasveinar eru:
. Rúnar
. Hilmar
. Garðar
. Andri
Jólaball:
Byrjar 14, mæting 13. Rúnar á gítar, Íris og Anna verða sveinkar. Fá kassa hjá Ásgerði uppá dúka fyrir kökuborðið.
Inga Lóa og Anna ætla versla sem vantar - mjólk, rjóma, bolla, diska, gaffla,servíettur.
Brenna:
Leyfi ekki enn komið en Inga Lóa ætlar að græja það.
Formaður Skemmtinefndar:
Er í vinnslu er verið að reyna fá Andra eða Hilmar í þetta....
Annað:
Vantar hugmyndir fyrir labbitúr en engar spes hugmyndir komu upp og verður þetta tekið upp á næsta fundi....
Fundi slitið og næsti fundur miðvikudagur inn 7 janúar kl 20:00 hjá Binnu

Sjötti fundur Íslendingafélagsins í Horsens
Starfsárið 2008-2009
7. janúar 09
Staður: Hjá Binnu
Kl 20:00
Mættir: Binna, Inga Lóa, Kristín Alma, Anna Guðný, María og Íris

Hvernig gékk:
Skatan: Gékk mjög vel, allir mjög ánægðir og sáttir við daginn. Svolítið mikið af afgöngum. Inga lóa Skrifar um atburð
Jólasveinar á aðfangadag: Gékk ágætlega minna af gjöfum en í fyrra. Íris skrifar um atburð.
Jólaball: Gékk vel, vel mætt og fólk ánægt. Mætti byðja jólasveina að koma eftir kaffi.  Inga Lóa Skrifar um atburð.
Brenna: Gékk vel að öllu leyti nema erfilega gékk að kveikja í henni. Inga lóa Skrifar um atburð.

Á dagskrá:
Geymsla: ákveðið að slá til í að leygja geymslu undir dót félagsins, kostnaður er áætlaður í kring um 200-300 á mánuði og verður farið í málið í febrúar sökum prófa hjá stjórnarmeðlimum.
Göngudagur (17.jan): Verður göngudagur í Egebjerg klukkan 11:00 og verður gengið og farið í leiki og haft gaman. Fólk beðið að taka nesti ef því langar.
Spilakveld (29.jan):  Í Via fyrir fullorðna frá 20:30 til c.a 23:00 spilað verður borðspil og venjuleg spil og markmið kveldsins er að hafa gaman. Bjórsala, gossala og nammisala verður á staðnum.
Dæmi um spil: Hættuspil(Íris), Íslandsspil(María), Trivial(Íris), Kreppuspil(Íris), Sequence(???) oflr.
Póker (6.feb):  Ákveðið var að halda annað pókerkveld fyrir karlpunginn, Og reikna með að Atli og einhverjir sjái um það fá Jóa með í lið.
Festilavn (1.mars): Hringja í Finn til að fá Atriumgarden frá 13:00 til 17:00 - KAS ætlar að gera það og í leiðinni ætlar hún að fá salinn fyrir páskabingóið 11.4.09 frá 13:00 til 17:00
Vorhátíð og ball ( 16.mai):  Athuga með Vesthallen, Skoðaleigu á partýtjaldi, tala við hljómsveit í Arhus.
17-júní(17-júní):  Athuga með Vesthallen, Hoppukastala og fleirra dót.
Annað:
Páskaegg: Finna influtningsleið
Annáll: Tala við Sæunni og Soffíu um að skrifa hann.
Næsti fundur:
Fimmtudagur 22. Jan hjá Maríu


Sjöundi fundur stjórnar IFH 2008-2009

Sjöundi fundur ÍFH
Starfsárið 2008-2009
Mættir: Atli, Kristín Alma, Inga Lóa, Binna, Ásgerður, María, Íris og Anna
Skipt var Binnu Út vegna flutninga og Ásgerður nú orðin formaður skemmtinefndar.
Næstu atburðir:
Spilakveld:
Mæta 20:00 til 4 kassar af bjór og 3 kassar af gosi, sjoppan verður á staðnum.
Póker:
. Atli, Ásgerður og Kristín Alma
. Safna kittum- Anna með lista
. Vín hjá Ingu Lóu, Kaupa bjór, Ath augl- Atli
Festilavn: 1 mars 13:00-17:00
. Köttur f/tunnu
. Tunnur
. Salurinn klár- Otriumgaarden
. Skemmtinefnd að finna 2-3 leiki fyrir börn
PáskaBingó: 11.apr. 13:00-17:00
. Baka bakkelsi
. Vinningar hve margir?
Vorhátíð + Balla:
. Gjald f/matinn
. Vesthallen - tjöld og fleirra
. Ath Kommune með kamra -eru til staðar
Pöbbarölt:
. Ath/ með Snorr að syngja á koks??
. Fara á staði og finna út tilboð eða e-h lignende
Páskaegg ath með flutning???????


Áttundi fundur IFH 2008-2009

Mættir: Atli, Kristín Alma, Inga Lóa, Binna, Ásgerður, María, Íris og Anna
Skipt var Binnu Út vegna flutninga og Ásgerður nú orðin formaður skemmtinefndar.
Næstu atburðir:
Spilakveld:
Mæta 20:00 til 4 kassar af bjór og 3 kassar af gosi, sjoppan verður á staðnum.
Póker:
. Atli, Ásgerður og Kristín Alma
. Safna kittum- Anna með lista
. Vín hjá Ingu Lóu, Kaupa bjór, Ath augl- Atli
Festilavn: 1 mars 13:00-17:00
. Köttur f/tunnu
. Tunnur
. Salurinn klár- Otriumgaarden
. Skemmtinefnd að finna 2-3 leiki fyrir börn
PáskaBingó: 11.apr. 13:00-17:00
. Baka bakkelsi
. Vinningar hve margir?
Vorhátíð + Balla:
. Gjald f/matinn
. Vesthallen - tjöld og fleirra
. Ath Kommune með kamra -eru til staðar
Pöbbarölt:
. Ath/ með Snorr að syngja á koks??
. Fara á staði og finna út tilboð eða e-h lignende
Páskaegg ath með flutning???????



Níundi Fundur ÍFH
26. FEB. 2009
Mættir: Inga lóa, María, Ásgerður, Íris og Laufey
Öskudagur 1.mars:
Þarf að kaupa kaffi, djús, mjólk, gaffla og glös.
Hafa samband við Finn (Anna)
. Ath hvort allt sé klappað og klárt, og hvar kústurinn sé
. Ath með dagsetningu f/bakstur 28.03 eða 04.04
. Ath hvort sé hægt að fá salinn lengur fyrir páskabingó frá 12:00 til 17:00
Páskabingó 11. Apríl:
Ath með lítil egg frá Nóa Síríus c.a. 120 egg
Ætlum að hafa 10 leiki   og vinningar eru 1 x nr-7 og  9 x nr-4 (María ætlar að hafa samband)
Vorhátíð 16.maj:
. Ath hvort þurfi leyfi-kommune (Íris og anna)
. Ath með leigu á tjaldi (???????)
. Ath með tímabundið vínveitingaleyfi (Íris og Anna)
. Malakoff tekur 2000kr +bensín
. Bekkir og stólar =2000kr
Pöbbarölt 20 mars:
Setja skipuleggingu í gang....
Uppgjör á þorrablóti... Gleymdi að fá blaðið hjá Önnu (ég var að mála ?)
Heimasíðan (upplýsingar):
. Listi yfir leigumiðlanir - María
. Áður en haldið er til DK - Laufey
. Upplýsingar til barnafólks - Laufey
. Skólar - María
. Barnabætur - María
. Fæðingarvottorð - María
. Skírn Barna - María
. Bílamál - til
. Sjúkrasamlag - Íris
. CRP -Gula Kortið - Íris
. Félagshjálp - Íris
. Skatur - Inga Lóa
. Tryggingar - Inga Lóa
. Bankar - Inga Lóa
. Sími - Ásgerður
. Sjónvarp - Ásgerður
. Net - Ásgerður
. Skólar í grend - Anna
. VIA - Anna
. Staðreyndir um Horsens - Atli
. Staðreyndir um ÍFH - Atli
. Áður en flutt er til Íslands - Atli
. Sjóflutningsleiðir -Atli
. Vinnumiðlun - Inga Lóa
Þetta eigum við að fara í gegnum og uppfæra og betrumbæta. Skilist á þarnæsta fund.
Svo var það uppgjörbókin:
Þarf að skrifa um atburðina svo næstkomandi stjórn eigi auðveldara með að framkvæma atburðina. Taka skal fram alla aðila sem nauðsynlegt er að hafa samband við (og nr)  í það og það skipti jafnt sem helstu atriði sem hafa þarf í huga.
. 6.nóv Pókergleði - Anna Búinn
. 29.nóv Piparkökugleði -
. 3. Des Jólapakkasending - KAS
. 15.des Jólamessa - Anna
. 23.des SKATA -
. 24.des Jólasveinar - Íris
. 27. Des Jólaball - María
. 31. Des Brenna - Inga Lóa
. 17 jan Göngugleði - Íris eða Anna
. 29.jan Spilakveld - Ásgerður
. 7. Feb Póker - Atli
. 21. Feb Þorrablót - Þorrablótsnefnd
. 1.mars - Öskudagur/festelovn
. 20.mars - Pöbbarölt
. 11. Apríl Páskabingó
. 16. Maj Vorhátíð og ball -
. 17. Júní Hátíð -
. Kvennahlaup
. 5. Sept Skógarferð
. 12. Sept Aðalfundur og ball
Næsti fundur var ákveðinn ?????


Stjórnarfundir starfsárið 2007-2008


Fundargerð 1. fundar hjá stjórn Íslendingafélagsins í Horsens, starfsárið 2007-2008. 

Mættir:  Inga Lóa, Inga Ósk, Rúnar, Kristín Alma, Kolbrún, Hilmar og Friðrik.  Fundurinn var haldinn heima hjá Rúnari og þökkum við kærlega fyrir frábærar veitingar á fundinum?

Hilmar og Friðrik sögðu nýrri stjórn frá hlutverki stjórnar Íslendingafélagsins í Horsens.  Það eru ýmsir hlutir sem þarf að gera strax:
. Færa heimilisfang Íslendingafélagins
. Finna nýjan stað fyrir það dót sem Íslendingafélagið á
. Gera dagskrá fyrir starfsárið
. Gera fjárhagsáæltun fyrir starfsárið
. Rukka félagsgjöldin
. Gefa Daníel prókúru á reikning félagsins

Á fundinum var gerð gróf dagskrá fyrir komandi starfsár

Nóvember
3. nóv Diskókeila fyrir unglinga og foreldra
17. nóv Tónleikar með Bubba í Flensburg
21. nóv Landsleikur í fótbolta Danmörk-Ísland í Parken

Desember
1. des Þemaball á skólabarnum
9.des Jólastund og piparkökudagskrá
16.des Jólamessa og kaffi á eftir
23.des Skötuveisla (staðsetning auglýst síðar)
24.des Jólasveinar í pakkaleiðangri um allan bæ
26.des Jólaball
31.des Áramótabrenna - brennusvæðið í Mosanum

Febrúar
3. feb Festelavn
16.feb Þorrablót haldið í Vesthallen í Horsens

Mars
22. mars Páskabingó

Apríl
26. apríl Vorfagnaður og Ball

Maí
17. maí Ratleikur

Júní
14. júní Kvennahlaup
17 júní. 17 júní þjóðhátíðardagur Íslendinga

Júlí
Sumarfrí

Ágúst
Sumarfrí

September
6.sept Skógarferð í Bygholm Park
13.sept Aðalfundur og Nýbúaball

Nánari pælingar um dagskrá starfsársins:
. Varðandi þorrablótið þá er hljómsveitin sem var á klakamótinu tilbúin til að koma á blótið og spila.  Búið er að ganga frá því að sami aðili og sá um matinn í fyrra sér líka um hann næst.  Búið er að ganga frá pöntun á hljóðkerfinu.
. Varðandi páskabingó þá kom upp sú hugmynd að athuga hvort hægt sé að halda það í bingó Horsens.
. Varðandi landsleikinn Ísland-Danmörk, þá kom upp sú hugmynd að bjóða upp á rútuferð á leikinn.  Inga Ósk ætlar að hafa samband við KSÍ og athuga með miða á leikinn.

Önnur mál:
. Bjarni Haukur hefur sett sig í samband við Íslendingafélagið til að athuga möguleikann á að koma með leiksýninguna Pabbinn til Horsens.  Það þarf að athuga betur á hvaða forsendum hann ætlar að koma, athuga með kostnað og jafnvel að athuga hvort fleiri Íslendingafélög vilji sameinast um þennan viðburð.
. Svavar Gestsson, sendiherra hefur sett sig í samband við stjórn Íslendingafélagsins og vill fá að hitta stjórnina, jafnvel að vera með opin fund.  Tilgangur Svavars er að fá upplýsingar um hvað Íslendinar eru að gera hér og almennt spjall.
. Rætt var um hvort Íslendingafélagið ætti að kaupa sér sinn eigin gsm síma og vera með símanúmer félgsins.  Síminn myndi þá fara á milli stjórnarmeðlima.  Engin niðurstaða á fundinum.
. Það vantar forsvarsmann til að stýra unglingaklúbbnum á starfsárinu.  Kristín Alma er til í að vera með í þeirri stýringu ef hún fær einhvern annan með sér.
. Rætt var um hvernig við getum fengið fleiri félagsmenn inn í Íslendingafélagið í Horsens.  Hér býr mikill fjöldi Íslendinga sem ekki eru í félaginu.  Rætt var um að gefa út kynningarrit um Íslendingafélagið og senda það til allra Íslendinga á svæðinu.  Kristín Alma tók það að sér að tala við kommúnuna um að fá skrá yfir alla Íslendinga búsetta hér. 


Næsti fundur verður þann 24. október kl 20:00 heima hjá Ingu Lóu.
Kolbrún Jónsdóttir tók saman.


Fundargerð 2. fundar hjá stjórn Íslendingafélagsins í Horsens, starfsárið 2007-2008. 

Mættir:  Inga Lóa, Inga Ósk, Rúnar, Kristín Alma, Kolbrún, Hilmar og Daníel.  Fundurinn var haldinn heima hjá Ingu Lóu og enn þökkum við kærlega fyrir frábærar veitingar á fundinum?

Landsleikurinn
Inga Ósk hefur haft samband við KSÍ.  Íslendingafélagið getur fengið eins marga miða og þeir óska eftir á leikinn til 1. nóvember.  Það var því ákveðið að auglýsa viðburðinn á heimasíðunni og hafa þá dagsetningu sem fólk verður að vera búið að ákveða sig þann 29. október.  (Til að hafa nokkra daga upp á að hlaupa).  Þeir sem ætla að kaupa miða þurfa að skrá sig og gefa upp nafn, kennitölu og kreditkortanúmer.  Þeir sem kaupa miða í gegnum Íslendingafélagið fá sæti hjá stuðningsmönnum Íslands og fá í leiðinni aðgang í fyrirpartý til að rífa upp stemmningu fyrir leikinn.  Fyrirpartýið byrjar á milli 16 og 17 á keppnisdag og verður boðið upp á andlitsmálningu tildæmis?  Þegar fólk skráir sig fyrir miða á leikinn, verða þeir hinir sömu að segja til hvort þeir velji að fara með rútu sem Íslendingafélagið mun leigja ef næg þátttaka fæst.

Kynningarbæklingur
Kristín Alma er búin að fara til Horsens kommuna til að athuga hvort hægt sé að fá yfirlit yfir þá Íslendinga sem búa á svæðinu.  Kommúninni er ekki heimilt að gefa þær upplýsingar. 
Til að reyna að fá sem flesta upplýsingar förum við því aðra leið.  Hilmar mun hafa samband við Egebjergeskole til að fá upplýsingar um íslensk börn sem þar stunda nám, Inga Lóa mun reyna að fá samskonar upplýsingar frá Vitus Bering og Daníel mun fá upplýsingar frá leikskólunum (Fussingsvej og Emils Möller gade)
Komið er uppkast að kynningarbæklingnum og mun hann verða unnin fljótt.  Inga Lóa mun skrifa pistil formanns.  Ákveðið var að stefna að því að hafa skemmtun fyrir alla til að fylgja eftir útgáfu bæklingsins, Hilmar tók að sér að athuga hvort hægt væri að fá sal hjá Egebjergskole til þess.  Sú hugmynd kom að hafa einhverskonar íþróttaþema... Latabæjar fyrir þau yngstu og eitthvað minna barnalegra fyrir þau eldri?   Bæklingurinn mun verða borin út af stjórnarmeðlimum.

Þemaball
Þemaballið verður þann 1. desember á skólabarnum.  Hilmar er búin að fá salinn þar lánaðan á sömu skilmálum og áður.  Íslendingafélagið fær 5 krónur af hverjum seldum bjór, félagið skaffar tónlistina og borgar 600 kr fyrir þrif á salnum að balli loknu.  Sú hugmynd hlaut mestan hljómgrunn að hafa þemað Íþróttir - Íþróttaball.  Þá kom einnig sú hugmynd að nota tækifærið á ballinu og auglýsa félagið fyrir nýju fólki, tildæmis með því að hafa kynningarbæklinginn til dreifingar.

Diskókeilan
Diskókeilan verður laugardagskvöldið 3. nóvember.  Búið er að panta 5 brautir og ætlar Íslendingafélagið að greiða fyrir brautirnar, alls krónur 1850.  Félagsmenn þurfa að greiða sjálfir fyrir skóleigu sem eru um 10 kr á skó.  Auglýsa þarf strax diskókeiluna og ætlar Inga Ósk að hafa samband við Friðrik til þess.  Inga Ósk mun verða forsvarsmaður fyrir diskókeilunni og munu skráningar verða sendar á ifhorsens og forwardaðar beint á hana.  Síðasti skráningardagur fyrir diskókeiluna verður að vera 31. október, því ef léleg þátttaka verður getum við afpantað einhverjar brautir með tveggja daga fyrirvara.

Heimasíðan
Rætt var um að gera nokkrar breytingar á heimasíðu Íslendingafélagsins.
. Rætt var um að setja inn fleiri tengla á síðuna, það er um áhugaverða staði í Horsens og nágrenni. 
. Rætt var um að setja upp nýjan tengil sem myndi bera nafnið húsmæðrahornið.  Í húsmæðrahorninu yrðu upplýsingar um hvar hægt sé að kaupa ýmis matvæli (íslensk) í Danmörku, tildæmis skyr, lýsi og fleira.  Í húsmæðrahorninu mætti líka vera hugmyndir af mismunandi matreiddum kjúkling - uppskriftahorn einskonar?
. Lýst var yfir ánægju með nýjunar á heimasíðunni að hafa tildæmis brandara vikunnar (en spurning hvort vikan sé liðin og tími til komin á nýjan brandara, hehe).  
. Rætt var um að taka út könnunina um hvort vorið væri á næsta leiti.

Önnur mál:
. Kristín Alma hefur haft samband við Samskip vegna jólapakka og bíður ennþá eftir svari.
. Rúnar kom með fyrirspurn frá fótboltaáhugamönnum hvort hægt væri að koma upp innanhúsfótbolta.  Erfitt er að fá lánað hús til þess en Rúnar mun athuga málið betur á morgun.  Jafnvel spurning hvort megi skipta upp því húsnæði sem við höfum með því að hafa körfubolta aðra hvora viku og fótbolta aðrahvora viku.... jafnvel bæði á sama tíma???  Er í skoðun.
. Varðandi jólamessuna, þá verður hún 16 des.  Hilmar tók að sér að tala við prestinn hér og forsvarsmenn safnaðarheimilisins.  Inga Lóa tók að sér að hafa samband við íslenska prestinn.... mun hún viðra við hann að hafa öðruvísi lög við jólamessuna en var í fyrra, það er ekki svona erfið lög að syngja.  Ákveðið var að bjóða Svavari Gestssyni í jólamessuna og reyna að fá tækifæri til að ræða málin við hann í kaffinu á eftir.  Tildæmis var ákveðið að ræða við hann um húsnæðisvanda Íslendingafélagins, og hvort hann viti um einhverja leið / peninga til að laga þau mál.  Með því að fá fast húnæði fyrir okkar viðburði myndum við fá virkara félag.  Inga Lóa talar við Svavar.
. Ákveðið að leita tilboða í flutning á skötunni til landsins, bæði hjá Icelandair og Iceland Express.
. Inga Ósk talar við Gunnu (vinkonu sína og íbúa í Mosanum) um hvort hún vilji taka að sér unglingaklúbbinn.  Jafnvel í samvinnu með dóttur hennar sem er 17 ára og Kristínu Ölmu.

Næsti fundur verður þann 31. október kl 20:00 heima hjá Kolbrúnu og Hlyn í Ranunkelvej 28.
Kolbrún Jónsdóttir tók saman.


Fundargerð 3. fundar hjá stjórn Íslendingafélagsins í Horsens, starfsárið 2007-2008

Mættir:  Inga Lóa, Inga Ósk, Rúnar, Kolbrún, Hilmar, Hlynur og Daníel.  Fundurinn var haldinn heima hjá Kolbrúnu og Hlyn.


Landsleikurinn
Um 15 manns hafa skráð sig fyrir miða hjá Ingu Ósk.  Eitthvað af fólki hefur verið í sambandi við Ingu og sagt að sér finnist miðinn of dýr.  En þetta er bara það verð sem KSÍ setur upp og við vitum að okkar fólk er að fá ágætis sæti.

Keilan
Búið er að fylla í allar brautir í unglinga-diskókeilunni.  Um 28 manns búnir að skrá sig til leiks.  Íslendingafélagið greiðir fyrir brautirnar, alls kr. 1850. 

Kynningarbæklingur
Er langt kominn.  Inga Lóa þarf að stytta sinn pistil um helming.  Búið er að fá lánaðan sal í Egebjergskole þann 25. nóvember til að hafa fjölskylduskemmtun til að fylgja bæklingnum eftir.  Fyrir yngstu börnin verður latabæjarþema (rúnar sér um það) og börnin fá gjafir frá Latabæ (Kolla sér um það).  Fyrir þau eldri verður boðið upp á boot camp (Rúnar talar við Lísu um það).  Félagið á tvær skeiðklukkur fyrir boot campið.  Við höfum salinn í skólanum frá 10-16 og stefnum á að fjölskyldudagurinn byrji kl 11. 

Önnur mál:
. Ekki er búið að ná í prestinn
. Enn er hægt að kaupa íslenskt lambakjöt hjá icelamb.  Skilst að þeir samt hætti þann 1. des.
. Rætt um hvort það eigi að setja teljara á heimasíðuna.  Friðrik skoðar það.
. Gunna er enn að hugsa málið hvort hún vilji taka að sér unglingaklúbbinn í samstarfi við Kristínu Ölmu.
. Ekki gengur að hafa innanhúsbolta í vetur, Rúnar er búin að athuga það.

Næsti fundur verður þann 12. nóvember kl 20:00 heima hjá Ingu Ósk í Ranunkelvej 60.
Kolbrún Jónsdóttir tók saman.


Fundargerð 4. fundar hjá stjórn Íslendingafélagsins í Horsens, starfsárið 2007-2008. 

Mættir:  Inga Lóa, Inga Ósk, Rúnar, Kolbrún, Hilmar, Friðrik og Daníel.  Fundurinn var haldinn heima hjá Ingu Ósk.

Unglingaklúbburinn
Gunna og María dóttir hennar hafa samþykkt að halda utan um starfssemi unglingaklúbbsins með Kristínu Ölmu.  Þær komu báðar í stutta heimsókn á fundinn og kynntu sig?

Jólapakkar til Íslands
Komið er tilboð frá Eimskip um að flytja jólagjafir frá Horsens til Íslands í gám.  Tekið verður á móti jólapökkunum þann 3. desember og er það allrasíðasti dagur sem þessi þjónusta verður í boði frá Eimskip.  Hver og einn má senda 20 kíló og kostar það kr. 330. 
Rúnar ætlar að tala við Bjarne um að fá lánað eitthvert hús í Mosanum til að taka á móti pökkunum.

Kynningarbæklingur
Er tilbúin og búið að prenta hluta af honum.  Inga Lóa sér um að láta prenta restina af honum.  Kynningarbæklingurinn verður borin út í hús á fimmtudagskvöldið, ásamt gíróseðlum.  Mæting heima hjá Ingu Lóu síðdegis.

Önnur mál:
. Lísa er til í að vera með í skipulagningu á fjölskyldudeginum.  Stefnt er að því að vera með nokkrar stöðvar, armbeygjur, sippa og fleira.  Hver og einn fái svo spjald til að setja tímann sinn inn á í hverri þraut.  Kolla ætlar að redda latabæjardótinu fyrir litlu krakkana og sultunni fyrir vöfflukaffið.
. Varðandi þemaballið, þá mótmælir skemmtinefnd því að hafa þemað íþróttir.  Ekki íþróttaball fyrir konur eru skilaboðin sem skemmtinefndin senda.  Ákveðið var að fara að óskum skemmtinefnarinnar og hafa lummóball.  Frítt fyrir félgasmenn en 50 kr inn fyrir þá sem ekki eru í félaginu.
. Ekki hefur enn náðst í prestinn til að fá kirkjuna lánaða fyrir jólamessuna. Hilmar heldur áfram að reyna.
. Rætt um skötuna.  Búið er að fá kantínuna lánaða... við þurfum sjálf að redda gashellum.  Bjartur tilbúin að vera að vinna í veislunni og kostar það 600dkr.  Hann er líka tilbúin til að baka rúgbrauðið ef við sköffum hráefnið.  Varðandi skötuna sjálfa þá á Friðrik von á því að fá svar í fyrramálið með hana.  Hann ætlar líka að tala við Jónar Transport.  Reiknað er með að skatann sé tilbúin 10-15 des og hún má ekki koma hingað til Horsens seinna en 20. des.  Ákveðið var verð fyrir skötuveisluna, 80 kr fyrir skötu og saltfisk fyrir félagsmenn, 130 kr fyrir þá sem ekki eru í félaginu.  25 kr fyrir pylsur og gos, 40 kr fyrir þá sem ekki eru í félaginu.   Allt verður að borgast fyrirfram.  Hægt verður að greiða hjá Ingu Ósk í mosanum, Kristínu Ölmu í kollegie og Ingu Lóu í skólanum. 
. Rætt um jólasveina á aðfangadag.... þurfum að hafa það á bak við eyrað ef við vitum um einhverja til að taka það hlutverk að sér.
. Það er í lagi að fá lánaðan salinn í skólanum fyrir Pabbann.
. Rætt um hvort eigi að setja nýjan link á heimasíðuna sem heitir barnapíuhornið.
. Rætt um hvort möguleiki væri á íslensku bíó... Hilmar tók að sér að kanna það.
. Fyrirspurn frá þeim sem eru í körfuboltanum hvort megi kaupa fleiri bolta þar sem bara einn bolti er til.  Ákveðið að það megi kaupa 3 bolta í viðbót.

Næsti fundur verður þann 19. nóvember kl 20:00 heima hjá Ingu Lóu.
Kolbrún Jónsdóttir tók saman.


Fundargerð 5. fundar hjá stjórn Íslendingafélagsins í Horsens, starfsárið 2007-2008. 

Mættir:  Inga Lóa, Inga Ósk, Rúnar, Kolbrún, Hilmar,Kristín Alma og Daníel.  Fundurinn var haldinn heima hjá Ingu Lóu.

Fjölskyldudagurinn
Við mætum kl 10 í Egebjerghallen til að undirbúa daginn.  Danni sér um innkaup fyrir vöfflubaksturinn.  Stefnum að því að byrja dagskrá um korter yfir ellefu og þá með litlu krökkunum.  Stóru krakkarnir myndu byrja um tólfleytið og boðið væri upp á vöfflur samhliða.  Drukkið verður í anddyrinu.  Inga Lóa sér um að kaupa þykk blöð sem krakkarnir fá í Boot Camp.  Fólki verður boðið upp á að borga félagsgjöldin á staðnum.  Kristín kemur með dvd spilara, Danni með hrærivélina sína og Kolla með Latabæ á dvd.  Inga Ósk ætlar að athuga hvað brúsar í stadium kosta, spurning hvort hægt sé að gefa stóru krökkunum svoleiðis.

Þemaballið
Þemaballið verður þann 1.des.  Lummóball.  Það þarf að hringja í Gunnhildi til að fá að vita hvað er nákvæmlega til af skreytingarefni fyrir þemaballið.  Kristín Alma ætlar að lána sína tölvu fyrir tónlistina og Inga Lóa ber ábyrgð á tónlistinni sjálfri (talar við Sigga um það)

Jólapakkarnir
Við fáum ekki neitt hús hér í Mosanum þann 3. des.  En hægt er að lána okkur Ranunkelvej 8, þann 5 des.  Við athugum hvort hægt sé að breyta deginum hjá Eimskip, annars verður talað aftur við Bjarne.  Þegar fólk sendir pakka þarf það að fylla út ákveðið form.  Þurfum að spyrja Friðrik hvort hann eigi formið.  Tekið verður á móti pökkum frá 17-19 og Inga Ósk er til í að verða á staðnum. 

Önnur mál:
. Rætt um hvort við ættum að láta búa til snafsaglös fyrir skötuveisluna.  100 glös kosta okkur 20.000 kr.
. Síðasti séns til að skrá sig í skötuna verður þann 3. des.  Rætt um hugsanlega skiptivinnu við Árósar.  Inga Lóa er búin að hafa samband við Árósarstjórnina um það en ekkert hefur verið ákveðið.  Upphaflega spurðu stjórnarmenn í Árósum okkur um að fá tengilið okkar varðandi skötuna, á Íslandi og vildu vita kílóverð.  Þessari beiðni var hafnað.
. Rætt um hvort við ættum að stofna nefndir.... allavega þorrablótsnefnd og 17. júní nefnd.  Spurning um að auglýsa eftir fólki á heimasíðunni okkar... það er fólk þarna úti sem vill vera með en er kannski ekki tilbúið að binda sig í heilt ár.  Er tilbúið í einn atburð.   Í hvorri nefnd yrði einn úr stjórn og svo fjórir aðrir.
. Rætt um Pabbann.  Forsvarsmenn sýningarinnar biðja um 500-600 manna sal.  Við getum boðið þeim 200 manna sal.  Spurnig um að reyna að fá Pabban í feb eða mars.
. Rætt um árlegan fund meðal formanna Íslendingafélagana í Danmörku.  Hilmar sagði að þeir hafi aldrei verið.
. Hilmar gefur ekki lengur kost á sér í stjórn IFH.  Það þarf því að taka inn varamann og auglýsa eftir fleiri varamönnum.

Næsti fundur verður þann 26. nóvember kl 20:00 heima hjá Daníel, Bakkesvinget 19.
Kolbrún Jónsdóttir tók saman.


Fundargerð 6. fundar hjá stjórn Íslendingafélagsins í Horsens, starfsárið 2007-2008. 

Mættir:  Inga Lóa, Inga Ósk, Rúnar, Kolbrún, María, Kristín Alma og Daníel.  Fundurinn var haldinn heima hjá Daníel.

Þemaballið
Þemaballið verður um næstu helgi - genbrugsþema.  Ballið byrjar kl 10 og stendur til kl 3.    Bjór verður seldur á flöskum og ætlar Danni að telja kassana sem eru af bjór fyrir sölu og eftir sölu, en Íslendingafélagið fær 5 kr af hverjum seldum bjór.  Við þurfum svo að borga 600 kr fyrir þrifin á húsinu eftir ballið.  Inga Lóa ætlar að redda stimpli  Ákveðið var að skemmtinefndin má eyða 500 kr tops í skreytingar fyrir ballið.

Pakkar til Íslands
Búið er að ræða aftur við Bjarne og við getum fengið Ranunkelvej 8 til láns þann 3. des.  Frikki ætlar að athuga hvort hann eigi formið sem þarf að fylgja hverri sendingu, annars verður Eimskip að sjá um það.  Kolla, Rúnar og Inga Ósk ætla að standa vaktina með Eimskipsstarfsfólki.

Skötuveislan
Búið er að redda skötunni en hún kemur þó ekki frá sama fyrirtæki og í fyrra, heldur kemur hún núna frá Sandgerði/Garðinum.  Búið er að tala við Íslendingafélagið í Árósum og þeir ætla að vera með.  Frikki er búin að panta 50 kg af skötu.
Við ætlum að láta búa til sérstök skötusnapsaglös til að selja í skötuveislunni.  Með Ísland logói og inn í logóinu stendur IFH og svo 2007-2008.   Höfum þetta í bláu.

Jólastund
Jólastund með piparkökuskreytingum verður 9. des í Egebjergskole.  Byrjum kl 11 og höfum dagskrá til kl 14.  Boðið verður upp á kaffi og heitt kakó.  Kolla ætlar að kaupa flórsykur, matarliti og egg og 2000 piparkökur. 

Önnur mál:
. Rætt um hugsanlegan veislustjóra fyrir þorrablótið.  Veislustjóri fær flug, lestarmiða, gistingu og mat á þorrablóti.  Beðið er eftir svari frá Sigmari í kastljósinu.  Rætt um að tala við fleiri.  Kolla prófar að tala við Pétur Jóhann Sigfússon.
. Vibeke sem er yfir norrænafélaginu hafði samband við Ingu Lóu vegna bókar sem gefin var út í tilefni af 100 ára afmæli norræna félagins.  Bókin kostar 110 kr og verður til sölu í jólamessunni.
. Vantar myndir frá fjölskyldudeginum.

Næsti fundur verður þann 12. desember  kl 20:00 heima hjá Maríu, Engblommevej 53.
Kolbrún Jónsdóttir tók saman.


Fundargerð 7. fundar hjá stjórn Íslendingafélagsins í Horsens, starfsárið 2007-2008. 

Mættir:  Inga Lóa, Inga Ósk, Rúnar, Kolbrún, María, Kristín Alma, Friðrik og Daníel.  Fundurinn var haldinn heima hjá Maríu.



Skötuveislan
Samkvæmt skráningum eru komnir um 85 sem vilja fá skötu og um 40 sem vilja saltfisk.  Fiskurinn þarf að koma með morgunvél Icelandair á fimmtudaginn í næstu viku.  Kolla talar við Jónu hjá Icelandair um það.  Það verður búið að koma með fiskinn til Keflavíkur.   Kristín Alma reddar því að snafsaglösin komist til Horsens fyrir skötuna...  Danni sér um að kaupa bjór til að selja í skötunni, 3 kassa af Carlsberg og 3 kassa af Tuborg.  Raggi maður Ingu Lóu fer til Þýskalands og kaupir gos, sem verður selt á skötunni.

Nammisala
Friðrik ætlar að sjá um að versla íslenskt nammi sem á að selja á atburðum um jólin.  Pantað er frá nóa og síríus.  Kristín Alma verður á Íslandi og hún hefur tekið að sér að koma namminu á fólk sem er á leiðinni til Horsens.  Það eru allavega fjórir á vegum Maríu, fjórir á vegum Friðriks og tveir á vegum Kristínar sjálfrar.  Íslenskt gemsanúmer hjá Kristínu er 8485313.

Þorrablótið
Það vantar veislustjóra fyrir Þorrablótið.  Sigmar í kastljósinu er búinn að segja nei og sömuleiðis Pétur Jóhann.  Næstu skref eru að Kolla talar við Simma og Jóa, ef þeir ganga ekki talar María við Örn Árnason og ef hann gengur ekki heldur talar Rúnar við Helgu Brögu. 

Jólamessan
Presturinn kemur sjálfur með söngskrár í messuna og hefur lofað Ingu Lóu að breyta aðeins lögunum sem sungin verða í messunni.  Fólk kemur með bakkelsi á sameiginlegt hlaðborð en IFH skaffar kaffi og gos.

Önnur mál:
. Félagið þarf að kaupa gashellur fyrir skötuveisluna.  Gott fyrir félagið að eiga sínar eigin hellur.  Friðrik ætlar að athuga með verð á gashellum.
. Jólapakkar á aðfangadag... Rúnar talar við Bjarne um að fá lánað hús til að taka á móti pökkum.   María fer í Önskebörn til að athuga með gærur fyrir jólasveinana.
. Hugmynd fyrir næsta starfsár... búa til laufabrauð....láta fólk hafa miða á skötuveisluna.
. Jólaballið verður haldið í kantínunni í Vitus Bering á annan dag jóla.  Ballið verður frá 14-16.  Búið er að ræða við húsvörðin um að henda ekki jólatrénu en við verðum að sjá um það sjálf að balli loknu.  Inga Ósk sér um að kaupa nammið, alls í 150 nammipoka.
. Þorrablótið í Óðinsvé verður þann 26. janúar... þarf að athuga í sambandi við skiptivinnu.

Næsti fundur verður þann 22. desember  kl 10:00 heima hjá Ingu Ósk.

Kolbrún Jónsdóttir tók saman.
Fundargerð 8. fundar hjá stjórn Íslendingafélagsins í Horsens, starfsárið 2007-2008. 

Mættir:  Inga Lóa, Inga Ósk, Rúnar, Kolbrún, María, og Daníel.  Fundurinn var haldinn heima hjá Ingu Ósk.


Skötuveislan
Við mætum kl 10 til að undirbúa.  Raggi nær í skötuna til Kaupmannahafnar og Danni ætlar að sjá um að útvatna hana.  Það verða svo seld  4kg af skötu til Árósa. 
Glösin verða komin fyrir skötuveisluna og ákveðið var að selja þau á 25 kr stykkið, 30 kr með snafsi.  Annað sem verður selt í skötunni verður gos á 5 kr, bjór á 10 kr og safi á 5 kr.

Jólasveinar á aðfangadag
Inga Lóa ætlar að vera og taka á móti pökkum um morgunin frá 9-10.  Búið er að fá lánað hús í Mosevangen. 
Þeir sem verða jólasveinar eru:  Rúnar, Hlynur, Danni og Hallur. Þeir mæta kl 10.

Önnur mál:
. Frikki er búin að athuga með gashellurnar.  Hægt er að fá þær í tveimur stærðum, 24x24 sem kosta 1000 kr og svo 37x37 sem kosta 1600 kr.  Ákveðið var að kaupa eina af hvoru og ætlar Friðrik að sjá um að kaupa þær.
. Það vantar enn jólasvein fyrir jólaballið á annan í jólum... vantar líka einhvern sem sér um tónlistina.  Á jólaballinu er gos gefið.
. Brennan... Rúnar græjar leyfi fyrir brennunni hjá slökkviliðinu í Horsens.  Inga Lóa talar við Árna í sambandi við að kveikja upp í brennunni en Árni er slökkviliðsmaður.

Næsti fundur ekki ákveðin

Kolbrún Jónsdóttir tók saman.


Stjórnarfundir starfsárið 2006-2007 (Ekki allir fundir til á tölvutæku formi)


Fundur IFH  24.1. 2007 

Mættir voru: Hilmar, Árni, Björgvin, Friðrik, Gunnhildur og Siggi.

1.  Þorrablót:
Búið að panta flugmiða fyrir hljómsveitina, 5 miðar, Breiðbandið 3 miðar og kokkur.  Verð á flugmiðum,  kr. 8337.   Styrkur Flugleiða, 6 miðar.
Hljómsveit og sk.stjórar koma sennilega með lest. Ath hvað hópmiðar kosta eða hvort borgar sig að taka rútu.

2. Maturinn:
Flutningur á matnum Ísland - Kaupmannahöfn. Tilboð hefur komið frá Ísl. Cargo.   40 þús kr. ísl.  Sennilega sækir Siggi matinn og  Ása kokk.

3. Rútan á blótið:
Østbirk rútufyrirtæki gaf tilboð.  Dk  7500  Ath fleiri fyrirtæki.

4. Hljóðfæri:
Verið er að vinna í því að finna fyrirtæki sem leigja græjur.

5. Gisting:
Gistiheimilið Edda getur bara tekið við 6, vantar því gistingu fyrir 3, Edda ætlar að ath aðra gistingu. Ási kokkur gistir hjá Sigga.

6. Lambakjöt:
Ath hvort við getum keypt Ísl.lambalæri hér í Dk.

7. Þorrablót í Odinsvé:
Stjórn o.fl. fara til Odinsvé 10. feb. og vinna á þeirra blóti,  þeir koma svo til okkar að vinna 17. feb. Þeir sem fara eru: Siggi, Vallý, Árni,
Friðrik, Björgvin, Gunnhildur og Þröstur. Vantar 2-3

Næsti fundur 31.1. kl. 16. í kantínunni


Fundur IFH 31.1. 2007-02-11

Mættir voru: Hilmar, Árni, Björgvin, Friðrik, Gunnhildur og Siggi.

1. Festilavn / Öskudagsskemmtun.
Ath hvort Vestby skólinn er laus 24 eða 25 febrúar.

2. Þorrablót: 
Miðasalan gengur vel - um 90 miðar pantaðir á netinu.   

3. Gisting:
Hljómsveitin gistir bara laugardagskvöld en Breiðbandið föstudags og laugardagskvöld.   

4. Matur:
Lambalærin verða keypt í Herning, 65 kr. kg. Pylsur og meðlæti (nætursnarl) keypt hér.

5. Hljóðfærin:
Erfitt virðist að fá leigð hljóðfæri, nema ef um stórtónleika er að ræða, þ.a.l. mjög dýr pakki.

6. Skreytingar:
Skemmtinefndin sér um þær og fær aðstoð frá góðum og fjölhæfum konum.

Næsti fundur 7. 2. hjá Árna.


Fundur IFH  7. 2. 2007

Mættir voru: Hilmar, Árni, Björgvin, Friðrik og Gunnhildur.

1. Uppgjör síðustu atburða: 
Kostnaður við; jólamessu, 500 kr,  skötuveislu, 1600 kr hagnaður,  jólaball, 1500 kr kostnapður. brenna 308 kr kostnaður

2. Öskudagsskemmtun:
Sunnudagurinn 25.feb. í Vestbyskólanum kl. 15-17.
Skemmtinefndin sér um að kaupa tunnur, nammi, kaffi, gos o. fl. og að skreyta salinn. Kaffihlaðborð verður og sjoppan.

3.   Þorrablót:
Búið er að panta 138 miða. Húsið opnar kl.19.  Ferðir með rútu frá skólanum kl.18.30 og frá mosanum kl.18.45. Heimferðir kl 01.30 og 03
Ballið byrjar kl. 23.30. Gisting: 6 gista hjá Eddu, verðum að finna aðra gistingu fyrir 2. Ferðir frá Köben: Breiðbandið tekur lest á föstudag, ? hvort hljómsveitin  taki bílaleigubíl. Ath með leigu á ofni og hellum fyrir matinn.
10 manns tilbúnir að fara til Odinsvé og vinna á þorrablótinu; Siggi, Vallý, Árni, Friðrik, Björgvin, Gunnhildur, Þröstur, Rúnar, Linda og Kristján.
Lagt verður af stað kl. 16 laugardag 10. feb. og komið til baka kl. 05 aðfararnótt sunnudags.

Næsti fundur 12.2. hjá Björgvin.
                  


Stjórnarfundur IFH  05.01.2007 kl 20:00
Mættir eru : Hilmar - Gunnhildur - Dagbjört - Árni - Siggi og  Friðrik , (Björgvin-veikur)

Málefni eru rituð eftir þeirri röð sem að voru tekin fyrir.

1. Fundargerð síðasta fundar lesin yfir og aths.stjórnarmeðlima laggðar fram. Fundargerð sett inn á síðu eftir leiðréttingar.
 
2. Fyrirspurnum til stjórnar sem að liggja fyrir á vefsíðunni svarað.
Engar fyirirspurnir voru að þessu sinni og því engu að svara.

3. Uppgjör frá skötuvieslu:
Ekki eru allir reikningar komnir í hús og verður því vonandi hægt að klára það á næsta fundi.

4. Uppgjör frá Jólaballi.
Verið er að vinna í því að gera það upp - og munu tölur liggja fyrir á nærsta fundi. 

5. Uppgjör af áramótabrennu.:
Beinn kostnaður er 308 dkk sem að olían kostaði.
.
6. Barnastyrkur frá Kommúninni:
Skila þarf afriti af  barnalista allra félagsmanna IFH ásamt fæðingardegi þeirra og flokka þau niður eftir aldurshópum. Listi með "activities" sem að IFH hefur haldið fyrir börnin sl. ár þarf einnig að fylgja með og taka þarf fram hversu mörg börn mættu í hvert skipti. Ritari mun sjá um að klára barnalisann og  formaður um að skrá niður alla liði, hversu margir mættu í hvert skipti og skila þessu inn til Kommúnunar í Horsens fyrir 31.jan nk.

7. Þorrablót.
Komið er í ljós að við verðum með 9 manns á okkar vegum til að sjá um Þorrablótið. Þ.e 6 manna hjómsveit , 3ja manna skemmtanalið og 1 kokk. Kokkurinn verður hýstur í heimahúsi og þurfum við því að redda rest eða 9 manns í gistinu. Edda (gistiheimilinu) ætlar að hýsa 6 manns og ætlar að aðstoða okkur við að finna gistingu fyrir hina 3.
Miðagerð: Icelandair verður með LOGO á Þorrablótsmiðunum sem að seldir verða í ár.
Miðasala: Forsala miða hefst 10jan og sendur til og mað 5 feb. Forsala er aðeins fyrir félagsmenn IFH . Ekki forsala hefst 6 feb og stendur í 10 daga eða til 16 feb. Ath þar með vinninga fyrir happadrættið. Friðrik ætlar að tala við Magasín og Dagbjört við Express og Icelandair. Björgvin ætlar að sja um að panta rútu fyrir gestina og laga akstursrútínuna með þeim.

8.Unglingaklúbbur.
Unglingaklúbburinn ætlar að halda ball á Onsdagsbarnum þann 10 jan nk. Siggi og Vallý ætla að sjá um að leigja barinn á sínu leifi eins og síðast.

Fundi slitið kl 22:40.

Næsti fundur verður haldinn 19.01.2007 kl 16:00 í Kantínunni í skólanum.


Stjórnarfundur IFH  12.12.2006 kl 20:00
Mættir eru : Björgvin - Hilmar - Gunnhildur - Dagbjört - Árni - Siggi og  Friðrik.

Málefni eru rituð eftir þeirri röð sem að voru tekin fyrir.

1.Fundargerð síðasta fundar lesin yfir og aths.stjórnarmeðlima laggðar fram. Fundargerð sett inn á síðu eftir leiðréttingar.
 
2. Fyrirspurnum til stjórnar sem að liggja fyrir á vefsíunni svarað.
hverspyr: Valþór Brynjarsson
Netfang: veikur@hotmail.com
spurning: Sæl Er að bregðast við ósk ykkar um að fá hjálp eða ábendigar um atburði Þá er ég að sjálfsögðu reiðubúinn að hjálpa til við það en þá vantar mig kannski uppls. um forsendur þ.e.a.s hvernig vill stjórnin standa að þessu og hvað má þetta kosta og þess háttar praktískar uppl. svo maður segi ekki eitthvað við einhvern sem svo ekki er framkvæmalegt Kveðja Valþór P.S keep up good works.

hverspyr: gunnar asg.
Netfang: gunnijod@btnet.is
spurning: Af hverju er ekki hægt að halda svona trubbakvöld a skolabarnum td. þa fæst innkoma fyrir selda drykki og ef þið talið við islenskann trubador vill hann alltaf eitthvað fyrir sinn snuð og oft erþað þa aðgangseyrir en i þessu tilfelli finnst mer sanngjarnt að borga flugmiða og uppihald þar sem aðgangseyrir er engin eða að rukka kansk 50kr inn a barinn en það er fraleytt að borga undir fleiri en einn mann þar sem bara annar þeirra spilar. eg get lika frætt ykkur a þvi að landsþekktir menn i þessum bransa eru mjög dyrir og a þvi verði að felagið mun ekki raða við það en eg þekki nokkra sem væru pottþett til i að koma fyrir þessi byti og mjög auðvelt er að semja við. : Arni þor guðjonsson sem er stofnandi og fyrrverandi gitarleikari lands og sona. Hreimur örn Heimisson söngvara lands og sona, Halldor Geir Jensson blusfrömuður. Þorsteinn Darri sigurgeirsson blusfrömuður og Þor Oskar fitzgerlad ! sem hefur unnið trubadora kppni islands 3 ar i röð og hefur spilað með storum erlendum gruppum. Hafsteinn Mar haugsen.......þetta eru allt menn sem eg get haft samband við og kannað hvernig jarvegurinn liggur ef fyrir þvi er ahugi hja ykkur nefndarfolkki og eg tel að þetta seu allt menn sem hægt se að semja auðveldlega við, ekki kannski stærstu nöfnin en samt með þeim betri i bransanum....kv: gunni asg-s:26537396
Svar stjórnar  til Valþórs og Gunnars: Stjórn hefur í hyggju að aðstoða listamenn með því að liðka fyrir heimsóknir þeirra til okkar með þeim hætti að aðstoða þá við leit að húsnæði fyrir viðburðinn - gistingu fyrir listamanninn-og ath með hljóðfæraleigu ef að þess er þörf á. Félagið hefur ekki í hyggju að leggja út beinann kostnað vegna atburðarins. Heldur þó að listamaðurinn taki til sín aðgangseyri sem að greiddur væri inná atburðinn.

hverspyr: Jón Eyjólfsson, Bjarni Rúnar Einarsson, Kristján Kristjánsson
Netfang: joney@pc.dk, snus81@hotmail.com, kristjanheidar@hotmail.com
spurning: Kæra stjórn, Inn á heimasíðu Íslendingafélagsins má finna lögin sem félagið starfar eftir. Þau lög voru endurskoðuð á aðalfundi í september 2006. En þessi lög voru birt á heimsíðunni fyrir nokkrum vikum. Í 15. gr. núverandi laga (9.12.2006, www.ifhorsens.dk) kemur fram að: Þeir stjórnarmeðlimir og makar þeirra að ávallt sitja fundi eru undanskildir félagsgjöldum ásamt vefsíðustjóra -og formanni skemmtinefndar. Einnig eru sjoppustjórar undanskildir félagsgjöldum fyrir vinnu sína ásamt þeim sem að láta af rafmagn fyrir 17 júní hátið og ratleik í mosanum. Það vekur undrun okkar að þessi grein var ekki svohljóðandi síðast þegar við lásum lögin og ekki munum við eftir því að þessi lagabreyting hafi verið samþykkt á síðasta aðalfundi. En þá hljóðaði þessi svokallaða lagagrein þannig að: Stjórnarmenn eru undanþegnir félagsgjöldum. Við þurfum varla að minna stjórnarmeðlimi á að lagabreyting getur aðeins orðið á aðalfundi félagsins og með kosningu félagsmanna. Því langar okkur til að vita hvers vegna þessi breyting á 15. gr. hefur náð fram að ganga og á hvaða forsendum? Virðingafyllst, Jón Eyjólfsson Bjarni Rúnar Einarsson Kristján Kristjánsson
Svar stjórnar til Jóns Eyjólfssonar -Bjarna Rúnars  og Kristjáns Kristjánssonar: Við viljum byrja á þvi að þakka fyrir ábendinguna og það er ánægjulegt að sjá að fólk les reglulega jafnt og þétt  vefsíðu félagsins og lög þess. En þar sem að þetta hefur hingað til viðgengist sl ár að viðkomandi aðilar - þ.e sjoppustjórar (fyrir alla þá vinnu sem að þau leggja fram við sitt verkefni án nokkurrar greiðslu) og það fólk sem að hefur skaffað okkur rafmagn sem að  við þurfum á að halda við þær skemmtanir sem að við höldum nálægt þeirra húsakynnum án endurgjalds að þessir viðkomandi aðilar þurfi ekki að greiða félagsgjöld IFH. Stjórn yfirsást að leggja þetta fram á sl aðalfundi til samþ. en mun hér með taka þetta út úr lögum og sjá þá til þess að þetta verði þ.a.l tekið fram á næsta aðalfundi til samþykktar félagsmanna.

3. Menningarnefnd.
Vegna umtalsverða áskorana hvað varðar að halda menningarlega atburði innan félagsins hefur  stjórn IFH ákveðið að auglýsa eftir fólki sem að vill bjóða sig fram til nefndar sem að mun  alfarið sjá um slík athæfi. Og verður það auglýst á síðu félagsins á næstu dögum.

4. Messa í Handsted kirkju.
 Hin árlega jólamessa verður haldinn sunnudaginn 17.des nk í Handstedkirkju. IFH greiðir 300dkk  fyrir samkomuhúsið þar sem að kaffið er haldið eftir messuna. Gestir koma með bakkelsi og IFH sér um að útvega gos, kaffi og mjólk.

5. Sjoppan

Í ljósi þess að Ekran, okkar viðskiptaaðili hefur misst útflutningsleyfið þurfum við framvegis að panta nammi hja hverjum aðila fyrir sig (Nóa- Linda- Góa-Freyju) og sjá um að koma því til okkar. Verið er að vinna í lausnum á þessu máli. En búið er að panta jólasendinguna og er hún áætluð til DK þann 15.des.

6.Skatan.
Skötuveislan verður haldinn á Skólabarnum þann 23. des kl 12:00. Pottar og eldhúsáhöld verða fengin lánuð frá Vitus Bering kantínunni. Ath þarf með leigu á gashellum frá Festgarden til að elda skötuna. Koma þarf með hátíðartjaldið okkar og stilla því upp fyrir utan barinn og elda skötuna þar - borðað verður innandyra. Ath þarf með pylsubrauð og fá þau í "eðlilegum" stærðum. Ath með sérpantanir á þvi. Og leita í örðum búðum - Dönsku brauðin eru of litil fyrir S.S pylsur.

7. Jólapakkaútkeyrsla
Þann 24.des nk munu Jólaveinar keyra út jólapakka til Íslensku barnanna hérna í Horsens. Mæta á með pakkana á Ranukalvej 60 milli kl. 10-11 þann 24.des. Aðeins einn hefur boðið sig fram í jólasveinaembættið í þetta sinn en okkur vantar einn til viðbótar.

8.Jólaball
Jólaballið verður haldið þann 26.des í Vestbyskólanum.Og byrjar það kl 14:00. Aðeins hefur einn maður enn fengist í verkefni jólasveins -  ath þarf með kaup á betra skeggi fyrir þá,  þar sem að gömlu skeggin eru orðin frekar döpur, 1stk skegg kostar 600dkk. Gestir koma með veitingar og IFH skaffar kaffi og gos.

9. Áramótabrenna.
Varðandi áramótabrennu sem að haldinn er í Mosanum á Gamlárs þarf að ath með leyfi fyrir brennunni og ath með brennustjóra. Helst 2. Kaupa þarf brúsa og olíu og kostar það 700dkk.

10.Þorrablót.
Veislustjóri er fundinn en það mun vera Rúnar í Breiðbandinu og 2 félagar hans munu sjá um að halda utan um skemmtiatr. og annað slíkt. Dans á rósum mun spila fyrir dansi. Ath þarf með innflutning á mat þar sem að Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn hefur ekki í hyggju að aðstoða okkur í þetta skiptið. Vefsíður bandanna eru :  www.dansarosum.com.www.breidbandid.com .
Verð á Þorrabökkum (Togum) er ekki enn komið til okkar en vonast er til að tilboð verði komið í hús fyrir nærsta fund.

11. Fundargerðir.
Ákveðið var að allar fundargerðir skuli vera ritaðar eftir hvern fund fyrir sig. Þá sendar á alla stjórnarmeðlimi til yfirferðar til aths (ef einhverjar) og síðan færðar inn á síðu félagsins eftir nærsta fund þar á eftir.

12. Önnur mál.
Jólastund var haldin í Vestby skólanum þann 3ja des. sl. Frá kl 11-13.
Föndraðar voru og málaðar pipakökur undir leik Íslenskrar Jólamusíkar. Boðið var uppá heitt súkkulaði og jólasmákökur Góður rómur var gerður af þessari jólastund - en þangað mættu um 70.manns.

Fundi slitið kl 23:00.



Stjórnarfundur  28.11.2006 kl 20:00
Mættir eru : Björgvin - Hilmar - Gunnhildur - Dagbjört - Árni - Siggi og  Friðrik.

Málefni eru rituð eftir þeirri röð sem þau voru tekin fyrir.

1. Berglind segir sig úr stjórn.
Berglind Levisdóttir gjaldkeri félagsins hefur ákveðið að láta af störfum sem gjaldkeri og birgðarstjóri  IFH og skrifar okkur bréf  þess efnis og gefur þar greinagóða ástæðu. Hver tekur við? Varamaður stjórnar Einar Birgisson gaf ekki kost á sér í starfið og var þvi skorað á Friðrik Árnason  vefsíðustjóra að taka við gjaldkera hlutanum sem að og hann gerði og Björgvin Pétursson við birgðavörslu  þ.e  pöntunum í sjoppuna og öllu því sem að ber að panta og versla inn fyrir IFH (skemmtanir og þ.h) og varð hann einnig við því.

2.  Jóladagskrá.
Piparkökubakstur verður haldinn í Vestby skólanum á laugardaginn. Allir eru velkomnir í anda jólanna - IFH skaffar piparkökur og málningu.

3 Skata.
Lokið er við skráningar í skötuna og hafa um 50 fullorðnir skráð sig og einnig slatti af börnum í pylsur. Húsnæði er fundið og verður veislan haldin í Hatting forsaml.husinu (þar sem að síðasta þorrablót var haldið) og er kostnaður við leigu á þvi húsnæði 1900dkk. Amk 5 sjálfboðaliða þarf til að vinna þar - og bauð hluti stjórnar sig fram í það ásamt mökum. Panta þarf saltfisk og skötu. Pulsur/pylsur eru til.

4.Jólapakkar til Íslands
Íris frá Eimskip ætlar að koma til okkar 7. des og sækja jólapakkana sem að senda á til íslands - við höfum fengið lánað hús í Mosanum til að hýsa pakkavinnsluna eins og svo oft áður og þessi jólin er það að Ranunkelvej 60. 2 stjórnarmeðlimir buðu sig fram til að vera þar og aðstoða Írisi við herlegheitin. Tekið veðrur á móti pökkum á milli kl 17-18.

5.Pöntun á nammi frá Íslandi.
Verið er að ath með betri samniga við innflutning á nammi að heiman. Ekran hefur hingað til verið okkar samningsaðili en okkur langar að ath hvort að hægt sé að fara aðrar/ódýrari leiðir.
Kemur í ljós á næsta fundi hvað gerist - verið er að vinna í málinu og er stjórnarmaður að ath samninga við skipafélög og annað slíkt þess efnis.

6.Barkvöld.
Oft hefur komið upp sú hugmynd að hafa barkvöld/spilavköld. Og þá það sem fastan lið í hverjum mánuði. Verið er að ath með gamla skólabarinn í Vitus Bering (kjallaranum í A-blokkinni) og fá hann þá leigðan t.d fyrsta fimmudag í hverjum mánuði og e.t.v þá líka til að hýsa unglingaklúbbinn okkar þegar að þau koma saman.

7. Þorrablót
Næsta þorrablót veðrður haldið þann 17.feb nk í Orestad multicenter. 17 feb var ákveðinn á næsta stjónarfundi þessa árs en einhver umræða hefur verið að flytja það á 3 feb en hjómsveitin okkar kemst ekki þann dag og ekki fannst húsnæði þann dag heldur. Svo að 17. feb verður dagurinn og byrjar blótið kl 20:00. Hjómsveitin Dans á Rósum mun spila fyrir dansi. www.dansarosum.com Skemmtanastjórar verða ?? en það er í vinnslu þar sem að lokasvar hefur ekki borist en það kemur í ljós á næsta fundi. Salurinn tekur 250 manns í sæti. Maturinn kemur frá Matarlyst í Keflavík eins og síðast og vonumst við til að fá sama kokkinn aftur. Starfmenn koma frá Odense eins og áður hefur tíðkast í skiptivinnu við stjórn IFH (en stjórn IFH mun fara til Odense og vinna á þeirra blóti þann10 feb). Forsala á miðum mun hefjast 12.jan og mun standa til og með 5 feb. En miðastölu á Þorrablótið lýkur 16 feb. Verð á Þorrablót mun vera það sama og í fyrra en það er : Í  forsölu 350 dkk fyrir félagsmenn og  450dkk fyrir utanfélaga. Eftir að forsölu lýkur er verðið 400 dkk fyrir félagsmenn og 500 fyrir utanfélagsmenn. Selt er inná ballið og mun kosta 150 dkk. Rúta fer á þorrablótið frá Horsens og verða stað og tímasetningar ákveðnar þegar að nær dregur. Einnig fara rútur til baka til Horsens. Ekkert gjald er í rútuna.

8. Smíði á Þorrabökkum (Trogum).
Hingað til höfum við alltaf fengið Trogin sem að notuð eru á Þorrablótinu lánuð frá Íslendingafélaginu í Odense. En nú kom upp sú tillaga að ath með verð á slíku (að við myndum eignast slíka bakka til framtíðar).  Fenginn var stjórnarmaður til að ath málið og sjá hver kostnaðurinn yrði. Þetta yrði þá í eigu IFH og getur verið notað á nk þorrablót. Vonandi kemur svar um það á nærsta fundi.

Fundi slitið kl 23:00.

Næsti fundur verður haldinn 12.12.2006 kl 20:00.









 


 

Pláss í gámi? 5. juni 2011
Opel 95 til sölu 4. maj 2011
Vantar smartbox 4. maj 2011

Allar smáauglýsingar