ifhorsens.dk | Íslendingafélagið í Horsens | Dagskrá



      

 


 


          Dagskrá starfsársins 2009-2010

 

Skógarferð í Bygholm park

Verður í Bygholm park laugardaginn 12. September næst komandi.                                                                                                    Boðið verður upp á grillaðar pylsur, meðlæti og gos.

 

Nýbúaball

Verður haldið á skólabarnum laugardagskvöldið milli 22:00 og 02:00. 

 

Mánaðarleg pókerkvöld

Fyrsta pókerkvöld verður haldið þann 2. október næstkomandi og vonum við að sem flestir mæti. Áhugasamir skrái sig hjá Atla Sigmari á póstfanginu atlisigmar@gmail.com. Planið er að hafa pókerkvöld í kringum fyrsta hvers mánaðar.

 

Piparkökugleði

Verður haldin í föstudaginn 4.desember í Egebjergskólanum, kl. 17.00

 

Jólamessan

Messan haldin á þriðja í aðventu, þann 13. Desember.

 

Skata

Verður á Þorláksmessu, miðvikudaginn 23. desember, kl 11.30 í kantínu VIA skólans. Enn á eftir að ákveða verð og annað sem kemur í ljós síðar. Sjoppan verður á staðnum.

 

Jólasveinar

Jólasveinar ganga í hús þann 24. Desember og gleðja krakkana. Stjórnin telur þörf á fleiri jólasveinum en síðast sem þá voru fjórir. Best væri líklega að panta sex stykki káta sveina

 

Jólaball

Verður haldið sunnudaginn 27. Desember í VIA skólanum.

 

 

 

 

Jólapakkar

Reynt verður að bjóða upp á ódýra leið til að koma jólapökkunum heim til Íslands fyrir félagsmenn eins og hefur verið áður.

 

Áramótabrenna

Við fögnum áramótunum að íslenskum sið og verðum með áramótabrennu í mosanum.

 

Þorrablót

Verður haldið 20. Febrúar 2010 í Egebjerg hallen salnum sem hefur þegar verið pantaður.

 

Fastelavn

Verður að venju haldin hátíðleg með balli í Egebjerg skóla þar sem sleginn verður kötturinn úr tunnunni og tilheyrandi fjöri.

 

Páskabingó

Verður haldið sunnudaginn 28. mars í Egebjerg skóla eins og áður.

 

Vorhátíð og ball

Verður haldið 15. Maí 2010. Undirbúningur hefst síðar.

 

Þjóðhátíðargleði 17. Júní

Verður haldin fimmtudaginn 17. júní 2010. Undirbúningur hefst síðar.

 

Kvennahlaupið

Allur undibúningur verður í höndum Kvennaklúbbsins.

 

Sumarfrí

Dagsetningar hafa ekki verið festar enn.

 

Verslunarmannahelgargleði

Atburðurinn gekk vel síðast og ákveðið hefur verið að undirbúa aftur svipað húllumhæ árið 2010. Rætt hefur verið að setja upp partýtjöld og fá trúbador/a til að spila. Undirbúningur hefst síðar.

Sjoppan verður starfrækt á árinu og verður opin á flestum viðburðum okkar á meðan að birgðir endast.

 

Drög að dagskrá fyrir starfsárið 2008-2009

Nóvember 2008
6. Nóvember:  Strákakveld- Póker
29. Nóvember:  Piparköku gleði

Desember 2008
8. - 15. Desember:  Jólamessa
23. Desember:  Skötuveisla
27. Desember:  Jólaball
31. Desember:  Áramótabrenna

Janúar 2009
17. Janúar:  Göngugleði
29. Janúar:  Spilakveld

Febrúar 2009
7. Febrúar:  Fjölskyldudagur
21. Febrúar:  Þorrablót

Mars 2009
1 mars:  Festilavn
20. Mars:  Pöbbarölt

Apríl 2009
11.  Apríl:  Páskabíngó

Mai 2009
16. Mai:  Vorhátið og Ball

Júní 2009
17. júní
Kvennahlaup

Júlí 2009
Sumarfrí

Ágúst 2009
Sumarfrí

September 2009
5. September:  Skógarferð
12. September:  Aðalfundur og Ball


 

Pláss í gámi? 5. juni 2011
Opel 95 til sölu 4. maj 2011
Vantar smartbox 4. maj 2011

Allar smáauglýsingar